Fara í efni

Kjarasamningur við ríkið

Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir. Ásamt stofnanasamningum við heilbrigðisstofnanir og framhaldsskóla á félagssvæði Kjalar

16 Uppsagnarfrestur

16.1 Uppsagnarfrestur á ótímabundnum ráðningarsamningi

16.1.1

Uppsögn á reynslutíma

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á reynslutíma er einn mánuður. Reynslutími er þrír mánuðir nema annað sé ákveðið í viðkomandi ráðningarsamningi.

16.1.2

Uppsögn að loknum reynslutíma

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur að loknum reynslutíma er 3 mánuðir.

16.1.3

Uppsagnarfrestur eftir tíu ára samfellt starf 

Sé starfsmanni sagt upp, eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hjá sömu stofnun, er uppsagnarfrestur sem hér segir:

  1. 4 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 55 ára
  2. 5 mánuðir ef hann er orðinn 60 ára
  3. 6 mánuðir þegar hann er orðinn 63 ára 

    Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða fyrirvara.

16.2 Uppsagnarfrestur tímabundið ráðinna og tímavinnumanna

16.2.1

Tímabundin ráðning fellur úr gildi án uppsagnar við lok samningstíma. 
Ef annar hvor aðila vill slíta ráðningarsambandinu fyrr, gilda eftirfarandi ákvæði: 

  1. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur tímabundið ráðinna skal vera einn mánuður.
  2. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur tímavinnumanna á fyrstu 3 mánuðum starfstímans skal vera ein vika miðað við vikuskipti. Vikuskipti miðast við föstudag. Eftir þriggja mánaða samfellt starf skal gagnkvæmur uppsagnarfrestur vera einn mánuður.