Kjarasamningur við ríkið
Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir. Ásamt stofnanasamningum við heilbrigðisstofnanir og framhaldsskóla á félagssvæði Kjalar
14 Iðgjöld í styrktarsjóð BSRB og Starfsendurhæfingarsjóð
14.1 Iðgjaldagreiðslur launagreiðanda í Styrktarsjóð BSRB
14.1.1
Iðgjald launagreiðanda skal nema 0,75% af heildarlaunum þeirra starfsmanna hlutaðeigandi launagreiðanda sem falla undir samkomulag þetta. Iðgjaldið skal greitt mánaðarlega eftirá skv. útreikningi launagreiðanda.
14.2 Iðgjaldagreiðslur launagreiðanda í Starfsendurhæfingarsjóð
14.2.1
Iðgjald launagreiðanda í Starfsendurhæfingarsjóð skal nema 0,13% af heildarlaunum félagsmanna.