Fara í efni

Kjarasamningur við ríkið

Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir. Ásamt stofnanasamningum við heilbrigðisstofnanir og framhaldsskóla á félagssvæði Kjalar

10 Fræðslumál

10.1 Nám á grundvelli endurmenntunar-/starfsþróunaráætlunar

10.1.1

Í þeim námskerfum sem samningsaðilar standa að, á starfsmaður sem unnið hefur a.m.k. fjóra mánuði hjá sömu stofnun, rétt á leyfi til að stunda þær námsleiðir sem þar er boðið upp á. 

Starfsmaður sem unnið hefur fjögur ár hjá sömu stofnun ávinnur sér einnar viku leyfi á hverju ári til að stunda aðra endurmenntun en um getur í 1. mgr. þessarar greinar, sem fellur að starfsþróunaráætlun stofnunar og/eða starfsmanns, þannig að eftir fyrstu fjögur árin í starfi á starfsmaður uppsafnaðar fjórar vikur í námsleyfi. Þó getur uppsafnaður réttur aldrei orðið meiri en 6 mánuðir og greiðist ekki út við starfslok. 

Starfsmaður sem unnið hefur fjögur ár hjá sömu stofnun og starfs síns vegna sækir sér menntun á hæfnisþrepi 5 (bakkalárpróf) eða ofar samkvæmt hinu íslenska hæfnisþrepakerfi, á grundvelli starfsþróunaráætlunar stofnunar og/eða starfsmanns, ávinnur sér tveggja vikna leyfi á hverju ári. Þó getur uppsafnaður réttur aldrei orðið meiri en 6 mánuðir og greiðist ekki út við starfslok. Í stofnun sem ekki hefur sett sér starfsþróunaráætlun á starfsmaður sama rétt til leyfis vegna náms og um getur í 2. og 3. mgr. þessarar greinar, enda sé um nám að ræða sem tengist starfi viðkomandi. Heimilt er að veita skemmri eða lengri námsleyfi á skemmra eða lengra árabili.

10.1.2

Launagreiðslur í námsleyfi 

Í leyfinu skal starfsmaður halda reglubundnum launum sbr. skilgreiningu í gr. 12.2.6. 
Heimilt er að greiða ferða- og dvalarkostnað samkvæmt 5. kafla.

10.1.3

Stofnun er heimilt að takmarka þann fjölda sem nýtir sér þennan rétt við 10% á ári, annað hvort miðað við fjölda vikna eða fjölda starfsmanna sem nýtir sér leyfið, ef aðsókn verður það mikil að það valdi erfiðleikum í rekstri stofnunar.

10.2 Launað námsleyf

10.2.1

Sérmenntað starfsfólk á heilbrigðisstofnunum sem með sérstöku leyfi stjórnar viðkomandi stofnunar, stundar viðurkennt sérnám varðandi starf sitt eða sækir framhalds- eða endurmenntunarnámskeið sem nýtur viðurkenningar heilbrigðisyfirvalda, haldi föstum launum með fullu vaktaálagi meðan slíkt nám varir, allt að þremur mánuðum á hverjum 5 starfsárum. Launahlutfall í námsleyfi sé sem næst meðaltali launa þann tíma sem rétturinn vannst á. Heimilt er að veita starfsmanni sem ákvæði þetta tekur til, námsleyfi með þessum kjörum tíðar en að framan greinir en þá skemur hverju sinni, þó ekki umfram 1 mánuð á hverjum 20 starfsmánuðum. Eins er heimilt að veita lengra leyfi sjaldnar eða allt að 6 mánuðum á hverjum 10 starfsárum og allt að 9 mánuðum á hverjum 15 starfsárum. Þó er heimilt að veita starfsmanni 9 mánaða leyfi eftir 12 ára starf. Næstu 3 ár eftir að námsleyfi lýkur í því tilviki, ávinnur hann sér ekki rétt til námsleyfi.

10.3 Fræðslusjóðir

10.3.1

Vinnuveitandi greiðir mánaðarlega framlag er nemi 0,82% af heildarlaunum félagsmanna og skiptist sem hér segir:

10.3.2

Vinnuveitandi greiðir sérstakt gjald í starfsmenntunarsjóð. Gjald þetta skal nema 0,32% af heildarlaunum félagsmanna.

10.3.3

Vinnuveitandi greiðir sérstakt gjald í Þróunar- og símenntunarsjóð bæjarstarfsmannafélaga hjá ríkinu. Gjald þetta skal nema 0,50% af heildarlaunum félagsmanna.

10.4 Fræðslusetrið Starfsmennt.

10.4.1

Launagreiðandi greiðir mánaðarlegt framlag er nemur 0,25% af heildarlaunum félagsmanna.