Kjarasamningur við ríkið
1 Kaup
1.1 Mánaðarlaun
1.1.1
Mánaðarlaun starfsmanns sem gegnir fullu starfi, skulu frá og með 1. apríl 2024 greidd samkvæmt meðfylgjandi launatöflu (sjá fylgiskjal) sem tekur eftirfarandi breytingum á samningstímanum, nema annað leiði af launatöflum:
| 1.4.2024 | 3,25% eða 23.750 kr. | |
| 1.4.2025 | 3,50% eða 23.750 kr. | |
| 1.4.2026 | 3,50% eða 23.750 kr. | |
| 1.4.2027 | 3,50% eða 23.750 kr. |
Launatöflur er með launaflokkum frá 01 til 54/57/61 lóðrétt. Átta þrep eru lágrétt og mynda launa vegna mats á starfsreynslu eða viðbótarnámi.
Launatafla sem gildir frá 1. apríl 2026 (pdf)
Launatafla sem gildir frá 1. apríl 2027 (pdf)
1.1.2
Brot úr mánaðarlaunum reiknast þannig, að deilt er með 21,67 í mánaðarlaunin og margfaldað með fjölda almanaksdaga annarra en laugardaga og sunnudaga frá upphafi eða til loka starfstíma.
1.1.3
Auk mánaðarlauna er heimilt að greiða önnur laun er starfinu fylgja með mánaðarlegri greiðslu. Önnur laun geta m.a. verið vegna reglubundinnar yfirvinnu og starfstengds álags sem ekki verður mælt í tíma. Önnur laun geta komið í stað yfirvinnukaups skv. gr. 1.5
1.2 Röðun starfa og mat álags
1.2.1
Við ákvörðun um röðun starfa í launaflokka skal fara eftir gr. 11.3.2.1.
1.2.2
Meta skal persónu- og tímabundna þætti, sbr. gr. 11.3.2.2 og 11.3.2.3, sem álagsþrep.
1.3 Viðbótarlaun
1.3.1
Heimilt er að greiða viðbótarlaun umfram reglubundin mánaðarlaun. Ákvörðun um greiðslu viðbótarlauna skal tekin af forstöðumanni og vera í samræmi við reglur fjármála- og efnahagsráðherra um greiðslur viðbótarlauna. Fjárhæð viðbótarlauna skal byggja á málefnalegum sjónarmiðum. Greiða má viðbótarlaun í allt að sex mánuði en ef tilefni er til er heimilt að framlengja greiðslu þeirra um þrjá mánuði í senn en þó aldrei lengur en í tvö ár samfellt.
1.4 Tímakaup í dagvinnu
1.4.1
Tímakaup í dagvinnu er 0,632% af mánaðarkaupi í hverjum launaflokki og þrepi.
1.4.2
Heimilt er að greiða tímavinnukaup í eftirfarandi tilvikum:
- Nemendum við störf í námshléum.
- Starfsmönnum sem ráðnir eru til skamms tíma vegna sérstakra, árvissra álagstíma ýmissa ríkisstofnana, þó eigi lengur en tvo mánuði.
- Starfsmönnum sem ráðnir eru til að vinna að sérhæfðum afmörkuðum verkefnum.
- Starfsmönnum sem starfa óreglubundið um lengri eða skemmri tíma, þó aðeins í algjörum undantekningartilvikum.
- Lífeyrisþegum sem vinna hluta úr starfi.
1.5 Tímakaup í yfirvinnu
1.5.1
Yfirvinna er greidd með tímakaupi, sem skiptist í yfirvinnu 1 og yfirvinnu 2. Tímakaup yfirvinnu 1 er 0,9385% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi en tímakaup yfirvinnu 2 er 1,0385% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi. Greiðsla fyrir yfirvinnu skal vera með eftirtöldum hætti:
| Yfirvinna 1 | Kl. 08.00 - 17.00 | mánudaga – föstudaga | ||
| Yfirvinna 2 | Kl. 17.00 - 08.00 | mánudaga – föstudaga | ||
| Yfirvinna 2 | Kl. 00.00 - 24.00 | laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga |
Tímakaup yfirvinnu 2 greiðist jafnframt fyrir vinnu umfram 38,92 stundir á viku (168,63 stundir miðað við meðalmánuð).
Föst yfirvinna sem er merkt sem slík í launakerfinu verði greidd sem yfirvinna 2.
1.5.2
Öll vinna sem unnin er á stórhátíðum skv. gr. 2.1.4.3. greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum.
1.5.3
Sé yfirvinna fjarri föstum vinnustað ekki greidd skv. tímareikningi, skal semja um þá greiðslu fyrirfram við viðkomandi starfsmann og í samráði við félagið.
1.5.4
Heimilt er að semja sérstaklega um fasta þóknun fyrir yfirvinnu.
1.6 Álagsgreiðslur - vaktaálag
1.6.1
Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1.
Vaktaálag skal vera:
| 33,33% | kl. 17:00 - 24:00 | mánudaga - fimmtudaga | ||
| 55,00% | kl. 17:00 - 24:00 | föstudaga | ||
| 65,00% | kl. 00:00 - 08:00 | þriðjudaga - föstudaga | ||
| 55,00% | kl. 08:00 - 24:00 | laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga | ||
| 75,00% | kl. 00:00 - 08:00 | laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka frídaga | ||
| 120,00% | kl. 00:00 - 24:00 | stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3 | ||
| 165,00% | kl. 16:00 - 24:00 | á aðfangadag og gamlársdag sbr. gr. 2.1.4.3 | ||
| 165,00% | kl. 00:00 – 08:00 | á jóladag og nýársdag sbr. gr. 2.1.4.3 |
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.
1.6.2
Greiðsla fyrir bakvaktir skal reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1 með eftirtöldum hætti:
| 33,33% | kl. 17:00 - 24:00 | mánudaga - fimmtudaga | ||
| 45,00% | kl. 17:00 - 24:00 | föstudaga | ||
| 45,00% | kl. 00:00 - 08:00 | mánudaga | ||
| 33,33% | kl. 00:00 - 08:00 | þriðjudaga - föstudaga | ||
| 45,00% | kl. 00:00 - 24:00 | laugard., sunnud. og sérstaka frídaga | ||
| 120,00% | kl. 00:00 - 24:00 | stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3 | ||
| 165,00% | kl. 16:00 - 24:00 | á aðfangadag og gamlársdag sbr. gr. 2.1.4.3 | ||
| 165,00% | kl. 00:00 – 08:00 | á jóladag og nýársdag sbr. gr. 2.1.4.3 |
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega. Um greiðslur fyrir útköll á bakvakt gilda gr. 2.3.3.1 og 2.3.3.2
1.6.3
Vinnutími starfsmanna skal vera samfelldur eftir því sem við verður komið. Greitt skal fyrir eyður í vinnutíma með vaktaálagi, skv. gr. 1.6.1.
1.6.4
Greiðsla fyrir eyður og bakvakt á dagvinnutímabili skv. gr. 2.2.1 er 33,33% álag
1.7 Persónuuppbót í desember
1.7.1
Persónuuppbót (desemberuppbót) á samningstímanum verður sem hér segir:
| Á árinu 2024 | 106.000 kr. | |
| Á árinu 2025 | 110.000 kr. | |
| Á árinu 2026 | 114.000 kr. | |
| Á árinu 2027 | 118.000 kr. |
Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili. Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs. Áunnin persónuuppbót skal gerð upp samhliða starfslokum.