Fara í efni

Mikilvægt og lærdómsríkt hlutverk

Að vera trúnaðarmaður er tækifæri til að hafa áhrif á eigin vinnustað, standa vörð um réttindi samstarfsfólks og stuðla að góðu og heilbrigðu vinnuumhverfi. Starfið getur jafnframt verið bæði lærdómsríkt og gefandi og veitt góða innsýn í kjaramál, réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Trúnaðarmenn þurfa ekki að hafa þekkingu á öllu frá fyrsta degi. Kjölur veitir þeim fræðslu, ráðgjöf og stuðning í starfinu.

Af hverju að bjóða sig fram?

Með því að bjóða sig fram gefst félagsfólki tækifæri til að:

  • hafa áhrif á sinn vinnustað,
  • vera rödd samstarfsfólks,
  • standa vörð um réttindi og hagsmuni starfsfólks,
  • efla þekkingu sína á kjaramálum og vinnurétti,
  • styrkja samskipta- og leiðtogafærni og
  • taka þátt í að byggja upp öflugt trúnaðarmannakerfi.

Öflugir trúnaðarmenn eru mikilvægur hlekkur í starfsemi stéttarfélags og gegna lykilhlutverki í því að tryggja að rödd starfsfólks heyrist á vinnustaðnum.

Kjölur hvetur því félagsfólk til að taka þátt, láta til sín taka og bjóða sig fram til trúnaðarstarfa. Þitt framlag getur skipt máli.

Nánari upplýsingar um má finna hér