Fara í efni

Fjölmiðlatorg

Hér eru helstu upplýsingar sem fjölmiðlar gætu þurft um KJÖL, um félagið, merki, myndir og tengiliðir.

Félagið heitir Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu, með heimili og varnarþing á Akureyri. 
Félagssvæði þess nær yfir Austurland, Norðurland, Vesturland og Vestfirði.

Tengiliðir við fjölmiðla

Hulda Guðmundsdóttir
Formaður
Anna Guðný Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri
Nafn og merki KJALAR

Merkið vísar til kjölfestu og krafts félagsins, með vænglaga forminu sem táknar hugsjónina og litum sem skírskota til íslenska fánans og pólitískrar breiddar félagsins; einnig má greina stafinn K falinn í forminu. 
Kristján Kristjánsson hjá auglýsingastofunni Kraftaverk hannaði merkið. 
Nafnið sjálft KJÖLUR kom frá Unu Sigurliðadóttur, sem sá Kjöl á Íslandskorti þegar leitað var að nafni án tengingar við ákveðna sveit eða deild. 
Í notkun skal nafn félagsins ritað hástöfum, helst í nefnifalli eða eignarfalli.