Fara í efni

Velkomin í félagið

Velkomin til Kjalar stéttarfélags sem er félagasamtök opinberra starfsmanna sem vinnur að því að verja og gæta hagsmuna félagsfólks og semur fyrir þeirra hönd um laun og réttindi. Kjölur er aðildarfélagi að BSRB bandalagi starfsmanna í almannaþjónustu.

Aðild opinberra starfsmanna að stéttarfélögum byggir á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna frá 1986.

Aðild að stéttarfélögum er bundin við starfsstétt/störf og í lögunum segir að eigi skuli nema eitt stéttarfélag hafa rétt til samningsgerðar við sama vinnuveitanda fyrir sömu starfsstétt.
Þetta þýðir að ef starfsmaður tekur að sér starf sem ákveðið stéttarfélag gerir kjarasamninga fyrir, þá greiðir viðkomandi starfsmaður félagsgjald til þess félags.

Í stjórnarskránni er þó kveðið á um að ekki megi skylda einstaklinga til aðildar að félagi. Það þýðir að starfsmenn geta kosið að standa utan félaga. Þeir sem svo gera hafa þó áfram greiðsluskyldu iðgjalds til félagsins hafi það samningsumboð vegna starfsins.

Lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna 

Samkvæmt lögum Kjalar verða þeir sem taka laun eftir kjarasamningi þess sjálfkrafa félagsmenn og greiða gjald til þess sem er 1% af öllum launum. Sex vikum eftir að viðkomandi hefur hafið störf og fengið einu sinni útborgað þá verður félagsmaður virkur félagi þegar iðgjöld hafa borist félaginu með skilagrein og getur liðið allt að þrem vikum eftir útborgun. 

Félagsmaður Kjalar hefur m.a. eftirfarandi réttindi með veru sinni í félaginu:

  • Haft áhrif á umhverfi þitt með að taka þátt í félagsstarfinu
  • Haft aðgang að námskeiðahaldi á vegum félagsins ´sér að kostnaðarlausu,
  • Komið með ábendingar um starfsemi félagsins til stjórnar félagsins
  • Nýtur kjarasamninga félagsins
  • Nýtur stofnanasamnings sem gerður er á viðkomandi stofnun (ríkið)
  • Nýtur veikindaréttar og fæðingarorlofs
  • Á rétt á úthlutun úr styrktarsjóði í fæðingarorlofi
  • Á rétt á að kjósa trúnaðarmann og stjórn
  • Á rétt á að dvelja í orlofshúsum og íbúðum félagsins
  • Á rétt á að taka þátt í því félagsstarfi sem boðið er upp á
  • Á rétt á úthlutun ú fræðslusjóði Kjalar til frekari námstækifæri
  • Á rétt á úthlutun úr Kletti styrktarsjóði til heilsu og forvarna
  • Á sér málsvara í réttinda- og álitamálum
  • Á rétt á framlagi frá atvinnurekanda leggi hann til viðbótarframlag í séreignarlífeyrissjóð
  • Vinnur sér inn réttindi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins eða Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda eða Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga
Réttur til aðildar 
 
  • Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem á ekki aðild að öðru félagi sem fer með samningsrétt þeirra

  • Starfsfólk sjálfseignarstofnana samkvæmt 2. gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna

  • Starfsfólk stofnana og fyrirtækja sem starfa í almannaþágu

  • Starfsfólk utan almannaþjónustu sem á ekki aðild að öðru stéttarfélagi

Einstaklingur sem uppfyllir eitthvert af ofannefndum skilyrðum til þess að geta orðið félagsmaður og greiðir félagsgjald til félagsins, telst þar með félagsmaður.

Starfsmanni verður ekki gert skylt að ganga í félag. Á grundvelli 2. mgr. 7. gr.laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 segir að starfsmaður sem ekki er innan stéttarfélags greiðir gjald til þess stéttarfélags sem hann ætti að tilheyra enda fari um laun hans og starfskjör eftir samningum samkvæmt nánari ákvörðun fjármálaráðherra eða sveitarstjórnar.