Lífeyrissjóðir
Félagsmenn Kjalar eiga aðild að samtryggingarsjóði (lífeyrissjóði) eftir ákvæðum kjarasamninga í samræmi við lög nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Aðild að séreignarsjóði vegna viðbótarlífeyrisréttar eða séreignasjóð velur félagsmaður sjálfur hjá þeim lífeyrissjóðum eða bönkum.
Ertu að missa af 2% launahækkun?
Málið er séreignarsparnaður!
Aðild að séreignarsjóði vegna viðbótarlífeyrisréttar velur hver félagsmaður sjálfur, hjá þeim lífeyrissjóði eða banka sem hentar.
Séreignarsparnaður (viðbótarlífeyrissparnaður) er ein verðmætasta eign okkar til viðbótar samtryggingalífeyrissjóði við starfslok, og er ein hagkvæmasta sparnaðarleiðin sem býðst í dag. Gegn 2–4% eigin framlagi launafólks greiðir launagreiðandi allt að 2% mótframlag. Það jafngildir 2% launahækkun — en fæst aðeins ef launþeginn leggur sjálfur til í séreign.
Kostir:
- Mótframlag launagreiðanda, ígildi launahækkunar
- Iðgjald er ekki skattlagt við innborgun
- Enginn fjármagnstekjuskattur af ávöxtun
- Sparnaðurinn erfist að fullu, án erfðafjárskatts
- Hægt er að ráðstafa honum skattfrjálst inn á húsnæðislán eða fyrstu íbúðarkaup
Vert að hafa í huga:
- Sparnaðurinn er almennt læstur til 60 ára aldurs
- Undantekning: útborgun vegna örorku eða andláts eiganda
- Skipti um vörsluaðila getur fylgt kostnaði
- Skipti um vinnu krefst þess að tilkynna nýjum launagreiðanda um vörsluaðilann
Félagsfólk sveitarfélaga sem komu til starfa eftir 1. júli 1998 greiða til Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga. Hann hét áður Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga en skipt var um heiti sjóðsins í júní 2016. Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélag skiptist í A, V og B deild. Allir starfsmenn sveitarfélaga fara í A-deild við ráðningu en geta flutt sig til V-deildar en ekki til baka aftur í A-deild.
Félagsfólk sem starfa hjá ríkinu greiða til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins A, B og S deild, (LSR) www.lsr.is
Einnig getur félagsfólk átt réttindi hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda eða greitt til hans. www.sl.is
Félagsfólk sem starfar hjá Akureyrarbæ og voru komnir til starfa fyrir 1. janúar 1999 greiða til Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar sem nú er E - deild í Brú lífeyrissjóði. Jafnframt hafa þeir val um að flytja sig til Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga
Á mínum síðum þess sjóðs sem hver og einn tilheyrir er hægt að skoða söfnun lífeyrisréttinda með því að fara í "lífeyrisgátt" er hægt að skoða öll rétttindi í öllum sjóðum sem viðkomandi hefur greitt til á starfsævinni.
Heimsíða Landsambands lífeyrissjóða