Fara í efni

Skattaleg meðferð námsstyrkja

Námskeiðsstyrkir eru skattskyldar tekjur. Heimilt getur verið að draga kostnað frá þegar styrkur er veittur vegna náms eða endurmenntunar sem tengist starfi styrkþega.

Ef námskeið eða nám tengist hins vegar ekki starfi, heldur er eingöngu vegna persónulegra áhugamála eða tómstunda, er kostnaður ekki frádráttarbær.

Nám, rannsóknir og vísindastörf

Styrkir til náms, rannsókna og vísindastarfa eru skattskyldar tekjur. Á móti námsstyrk er heimilt að færa til frádráttar beinan kostnað við námið, s.s. skólagjöld, en ekki kostnað við framfærslu sem telst vera persónulegur kostnaður. Óheimilt er að færa kostnað vegna kaupa á eignum til frádráttar á móti þessum styrkjum.

Á móti styrkjum til rannsókna og vísindastarfa er heimilt að færa beinan kostnað við hvert verkefni. Oft er um að ræða styrki vegna tiltekinna lengri og umsvifameiri verkefna sem eru þá gerð upp eins og rekstur.

Ef ekki er hægt að leggja fram kostnað á móti styrk í skattalegri meðferð (við gerð skattskýrslu), þá þarf að greiða skatt af styrknum eftir á.

Nánar má sjá hér á vef RSK Styrkir | Skatturinn - skattar og gjöld