Vegna námskeiða og skólagjalda:
- Nauðsynlegt er að skila löglegum reikningi á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing, nafn og kennitala fræðsluaðila.
- Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki.
Vegna náms- og kynnisferða og ráðstefna:
- Bréf frá stofnun/fyrirtæki/vinnustað umsækjanda, þar sem upplýst er um tilhögun, tilgang og markmið ferðarinnar. Bréf þetta skal vera áritað af yfirmanni og staðarval rökstutt
- Dagskrá ferðar (lengd faglegrar dagskrár erlendis skal vera að lágmarki 10 klukkustundir og dreifast á a.m.k. tvo daga, innanlands skal dagskrá vera að lágmarki 6 klst.)
- Hlekkur á vefsíðu og dagskrá þarf að fylgja umsókn um ráðstefnur
- Afrit af farseðli eða hliðstæðar kvittanir vegna útlagðs ferðakostnaðar
Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða og ekki gefinn út fyrir þann tíma sem félagsmaður öðlast rétt í sjóðnum.
Styrkur er greiddur sem næst í tíma, þó er styrkur aldrei greiddur út fyrir fram heldur að ferð lokinni og/ eða seta á styttri námskeiðum sé lokið.
Styrkir vegna skólagjalda eru ekki greiddir út fyrr en skólaönn er hafin og staðfesting frá skóla um skólavist hefur borist.

