Veiðikortið – Ótakmörkuð veiði í 36 vötnum
Yfir sumarmánuðina er hægt að kaupa Veiðikortið á orlofsvef félagsins, frábær kostur hvort sem þú ert vanur veiðimaður eða fjölskyldan vill bara eyða degi við vatnið. Kortið veitir ótakmarkaðan aðgang að veiði í rúmlega 36 veiðivötnum víðs vegar um landið, og gildir fyrir einn fullorðinn ásamt börnum yngri en 14 ára í fylgd korthafa. Veiðitímabilið er 8. apríl til 1. desember ár hvert. Athugið að merkja þarf kortið með kennitölu notanda.
Með hverju korti fylgir glæsileg handbók með öllum helstu leiðbeiningum og reglum, og kortið er sent í pósti til kaupanda næsta virka dag eftir kaup.
- Orlofsvefur (vísar á Mínar síður Kjalar) Sjálfsafgreiðsla á orlofsvef félagsins yfir sumarmánuðina.
- Heimasíða veiðikorts
