Útilegukortið - Tjaldsvæði um allt Ísland
Yfir sumarmánuðina er hægt að kaupa Útilegukortið á orlofsvef Kjalar sem er tilvalið fyrir þá sem vilja skoða landið án þess að það kosti sitt. Kortið gildir fyrir allt að tvo fullorðna og fjögur börn undir 16 ára aldri, í samtals 28 nætur yfir tímabilið, og nýtist á tjaldsvæðum fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla. Að auki fylgir afsláttur af eldsneyti hjá völdum aðilum.
Kortinu er hlaðið niður í síma félagsmanns í þar til gert veski (Wallet) slóðin kemur við kaup á kortinu.
Orlofsvefur(vísar á Mínar síður Kjalar) Sjálfsafgreiðsla á orlofsvef félagsins
