Fara í efni

Orlof að eigin vali – Þú velur, félagið styrkir

Árið 2026 mun félagið verja allt að kr. 4.500.000 í „Orlof að eigin vali" og úthluta 150 styrkjum, hverjum að upphæð kr. 30.000. Hugmyndin er: þú ræður hvernig þú nýtir orlofið þitt, hvort sem það er hótelgisting, hópferð eða ævintýri erlendis sem innanlands og félagið styrkir þig til þess.

Við úthlutun er tekið tillit til þess hvort félagsmaður hefur áður fengið úthlutað slíkum styrk, sem og félagsaldurs. Einungis er hægt að sækja um annað hvert ár og þurfa umsóknir að vera rafrænar á Orlofsvef félagsins á tímabilinu 2.–13. mars.

Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu eða eru í vandræðum með að sækja um í gegnum Orlofshúsavefinn geta fengið aðstoð á skrifstofum félagsins.

Eftirfarandi reglur gilda um fyrirkomulag „Orlofs að eigin vali":

  • Greitt er fyrir gistingu t.d. hótel, gistihús og tjaldstæði.
  • Greitt er vegna leigu á hjólhýsi, fellihýsi eða tjaldvagni.
  • Greitt er vegna hvala- og fuglaskoðunar, skipulagðra hópferða, hestaferða og siglinga.
  • Greitt er vegna fargjalda í flugi, ferða með rútu eða ferju.
  • Greitt er vegna kostnaðar við skipulagðar gönguferðir með viðurkenndum ferðaþjónustuaðilum.

Ekki er greitt vegna:

  • Orlofshúsa sem leigð eru af orlofsvef Kjalar stéttarfélags og annarra stéttarfélaga.
  • Flugávísana eða fluggjafabréfa.
  • Kvittana fyrir matarútgjöldum, bensíni og/eða almennum ferðakostnaði.

Til þess að hægt sé að greiða styrkinn þurfa öll viðeigandi gögn að fylgja:

  • Frumrit reiknings sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur hvað keypt er, nafn og kennitala söluaðila.
  • Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi fyrirtæki.

Sjá hér dæmi um löglega reikninga.

„Orlof að eigin vali" gildir fram til 16. desember á úthlutunarári — þeir sem fá úthlutað þurfa því að framvísa reikningum fyrir þann tíma til að fá endurgreitt. Orlofsávísun gildir eingöngu fyrir orlofsdvöl á almanaksárinu 2026.

Dregnir verða 18 punktar af félagsmönnum við úthlutun. Greiðsla styrksins fer fram eftir að ferðalagi lýkur, en félagsmenn þurfa að framvísa reikningi fyrir dvöl eða ferð.

Senda skal afrit reikninga vegna „Orlof að eigin vali“ á kjolur(hjá)kjolur.is og skrá inn réttar upplýsingar á mínar síður, bankareikning og tengiliða upplýsingar. Einnig er hægt að setja afrit af reikningum sem fylgiskjal við staðfestingu á úthlutun á mínum síðum á orlofvef félagsins.

 Mínar síður