Flugávísanir – Flug til allra áfangastaða Icelandair
Gjafabréfið gildir sem greiðsla fyrir flug í beinu áætlunarflugi Icelandair til allra áfangastaða félagsins. Frábær leið til að nýta sér ferðalagið hvort sem leiðin liggur innanlands, í sólina, í heimsókn til ættingja eða í frí erlendis.
- Gjafabréfið er einungis til sölu á orlofshúsavefnum
- Á gjafabréfinu er númer sem nota þarf þegar flug er bókað og keypt bæði innanlands og til útlanda
- Hver félagsmaður getur keypt að hámarki tvær ávísanir á 12 mánaða tímabili
- Hver félagsmaður þarf að eiga að lágmarki 12 punkta til að geta keypt gjafabréf
- Gjafabréfin gilda í fimm ár frá útgáfudegi og verða að notast innan þess tíma (bæði við brottför og heimferð)
- Gjafabréfin fást ekki endurgreidd
- Hér má sjá stöðu á gjafabréfi
Orlofsvefur (vísar á Mínar síður Kjalar) Sjálfsafgreiðsla á orlofsvef félagsins
