Skilmálar vegna afbókana

Skilmálar vegna afbókana
Breytingar á leigu og/eða afbókanir geta félagsmenn gert sjálfir á mínum síðum á orlofsvef félagsins. Þar er einnig hægt að stofna endurgreiðslubeiðni sem fer svo til afgreiðslu hjá gjaldkera félagsins. Endurgreiðslur geta tekið allt upp í 5 virka daga. Einnig er hægt að leita til skrifstofu félagsins með aðstoð við breytingar og afbókanir, gott er að senda tölvupóst á kjolur@kjolur.is með afriti af leigusamningi eða pöntunarnúmeri viðkomandi bókunar.
- Almenna reglan um afbókanir er að félagsmaður getur afbókað orlofseign og fengið endurgreitt að fullu ef beiðnin berst með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.
- Berist afbókun með minna en tveggja vikna fyrirvara er innheimt afbókunargjald að upphæð kr. 2.000.
- Berist afbókun með minna en 48 tíma fyrirvara er innheimt afbókunargjald að upphæð kr. 12.000.
- Sé leigutímabil þegar hafið er ekki endurgreidd leiga.
- Ef um er að ræða óviðráðanleg atvik svo sem veðurofsa, náttúruhamfarir eða bein tilmæli yfirvalda er endurgreitt að fullu.
- Dvelji félagsmaður í húseigninni er leiga ekki endurgreidd.
Sektir vegna brota á reglum Orlofssjóðs
- Óþrifnaður kr. 30.000
- Óþrifinn heitur pottur/grill kr. 5.000
- Óheimil framleiga fyrir hvern sólarhring sem leigutaki leigði húsið kr. 7.000
- Óheimilar reykingar og notkun rafretta kr. 25.000
- Gæludýr þar sem ekki er heimilt, varðar brottvísun og sekt kr.25.000
- Tjón eða skemmdir á húsbúnaði allt að kr. 25.000
- Óheimilt tjald/tjaldvagn/hjólhýsi o.s.frv. við hús kr. 25.000
- Hleðsla rafbíla í gegnum hefðbundna heimilistengla orlofseigna kr. 25.000
- Sein brottför án samráðs allt að kr. 10.000.
- Mætt of snemma án samráðs allt að kr. 10.000.
- Stjórn orlofssjóðs tekur ákvörðun um frekari sektir eftir þörfum.
Auk sekta getur brot á ofangreindu varðað útilokun frá orlofskerfi Kjalar.
Ágreinings vegna þessa má vísa til stjórnar Orlofssjóðs, september 2026