Fara í efni

Skilmálar leigutaka og reglur

Íbúðir og sumarhús – árið um kring

Orlofseignir Kjalar eru sameign okkar allra boðið er til leigu íbúðir og sumarhús allt árið um kring. Eignirnar eru fullbúnar húsgögnum og öllum helsta húsbúnaði, tilbúnar fyrir stutta eða lengri dvöl.

Hægt er að bóka staka nótt, helgi eða heila viku en aldrei lengur en eina viku í senn. Athugið að hver félagsmaður má aðeins vera með tvær bókanir í gangi samtímis.

Sjálfsafgeiðsluvefur er á Mínum síðum og krefst innskráningar með rafrænum skilríkjum. Þeir sem hafa ekki aðgang að rafrænum skilríkjum geta leitað aðstoðar hjá skrifstofunni eða sent fyrirspurn kjolur@kjolur.is og fengið nánari leiðbeiningar þar.

Félagsmaður sem er í atvinnuleit og greiðir félagsgjöld af atvinnuleysisbótum og í fæðingarorlofi og greiðir til félagsins, heldur hann rétti sínum til að leigja orlofshús.

Þeir sem hætta störfum sökum aldurs eða örorku halda rétti sínum til að leigja orlofshús í samræmi við áunna punktastöðu, þar til punktarnir eru uppurnir. Tilkynna þarf starfslok til félagsins og óska þess að vera merktir sem lífeyrisþegar. 

Skilmálar og ábyrgð leigutaka:

  • Leigutaki ber ábyrgð á dvalarstað meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til að bæta það tjón sem verða kann. Umgengnisreglur er að finna í leigusamningi og ber að kynna sér þær og fara eftir þeim. Einnig er til staðar í eignum nánari reglur um pottastýringar sem fólk er beðið að fara eftir í einu og öllu.
  • Verði leigutaki eða gestir hans uppvís að slæmri umgengni eða brotum á þeim reglum sem gilda, á hann á hættu að innheimt verði óþrifagjald allt að kr. 30.000 og að verða útilokaður frá frekari leigumöguleikum. 
  • Gæludýr eru eingöngu leyfð í Lyngási. Í öðrum húsum og íbúðum félagsins eru gæludýr stranglega bönnuð. Þetta á einnig við um útisvæði sem þeim tilheyra og gildir það líka um gæludýr gesta.  
  • Reykingar og notkun rafretta eru bannaðar innandyra.
  • Leigjanda er almennt óheimilt að framselja leigurétt sinn eða framleigja hið leigða húsnæði án samþykkis leigusala.Áríðandi er að skila lyklum í lyklabox við brottför og ef sóttir voru lyklar á skrifstofu þarf að skila þeim þangað aftur. 
  • Óheimilt er með öllu að hlaða rafbíla við húsin. Helðslustöðvar eru alls staðar stutt frá. 
  • Fjöldi þeirra sem geta gist í húsum og íbúðum er á leigusamningi og ber að virða það. 
  • Leigutaki þarf að kanna færð á vegum á vetrartíma, þar sem ekki er hægt að tryggja snjómokstur alla daga.