Með vísan til greinar 10.1.3 skulu starfsmenn fá persónuálag vegna árlegrar þátttöku í símenntunaráætlun sem hér segir:
- 2% eftir 1 árs starf hjá sveitarfélögum og/eða öðrum sambærilegum störfum.
- Samtals 4% eftir 5 ára starf hjá sveitarfélögum og/eða öðrum sambærilegum störfum.
- Samtals 6% eftir 9 ára starf hjá sveitarfélögum og/eða öðrum sambærilegum störfum.
- Samtals 8% eftir 15 ára starf hjá sveitarfélögum og/eða í öðrum sambærilegum störfum.
Við mat á starfstíma hjá öðrum vinnuveitendum til persónuálags getur sveitarfélag krafið starfsmann um gögn sem staðfesta þann starfstíma (vinnuveitendavottorð). Hækkun vegna starfstíma kemur til framkvæmda næstu mánaðarmót eftir að fullnægjandi gögn hafa borist vinnuveitanda.
Telst hálfur mánuður og stærri brot úr mánuði sem heill mánuður. Öðrum dögum skal sleppt.
Leiðbeining: þegar þú kemur til starfa hjá sveitarfélagi skaltu leggja fram starfsvottorð frá fyrri vinnuveitendum um starfstíma þinn þar. Sveitarfélagið hefur svo val um að meta hann nema sé hann frá öðru sveitarfélagi þá skal hann metinn til starfsaldurs og til mats á veikindarétti ásamt starfsaldri frá ríki og sjálfsteignastofnun.
Mat á sambærilegum störfum annars starðar frá skal metin og þá er líka gott að eiga starfslýsingu til að leggja fram með starfsvottorði til að auðvelda mat á sambærilegu starfi.

