Dalbær hjúkrunarheimili
Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir.
Inngangur

Kjarasamningar aðila framlengjast frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 með þeim breytingum sem í samkomulagi þessu felast og fellur þá úr gildi án frekari fyrirvara.
Kjarasamningstexti þessi byggir á heildartexta kjarasamnings Sambands íslenskra sveitarfélag Kjalar stéttarfélags í almannaþjónustu.
Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Kjalar stéttarfélags og Dalbæjar dags. 8. október 2024. Gildistími 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.
Samkomulag um breytingar sbr. fundargerð 7. fundar samráðsnefndar Dalbæjar og Kjalar stéttarfélags þann 22. ágúst 2024.
Samkomulag um breytingar sbr. fundargerð 9. fundar samráðsnefndar Dalbæjar og Kjalar stéttarfélags þann 20. mars 2025.