Dalbær hjúkrunarheimili
8. Verkfæri og fatnaður
8.1 Verkfæri
8.1.1
Starfsmenn eru eigi skyldugir að leggja sér til verkfæri nema svo sé sérstaklega um samið.
8.2 Hlífðar, vinnu og einkennisfatnaður
8.2.1
Hlífðarfatnaður, skilgreining:
Vinnuveitandi skal leggja hverjum starfsmanni til, honum að kostnaðarlausu, allar þær persónuhlífar (hlífðarbúnaður), sem krafist er samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum gilda þar um og reglum sem gilda um persónuhlífar sem ætlaðar eru til notkunar á vinnustöðum.
| Persónuhlífar er allur sá búnaður sem starfsmanni er gert að klæðast eða halda á, sér til verndar gegn einni eða fleiri hættum sem stefnt geta öryggi hans og heilsu í voða svo og allan viðbótar- eða aukabúnað sem ætlað er að þjóna þessu hlutverki. |
Fatnaðurinn/búnaðurinn er eðli sínu samkvæmt ætlaður til einstaklingsnota. En ef aðstæður krefjast þess að fatnaðurinn/búnaðurinn sé notaður af fleiri en einum manni skal gera viðeigandi ráðstafanir m.a. varðandi hreinlæti o.fl.
Sjá reglugerð Vinnueftirlitsins nr. 1290/2022 um notkun persónuhlífa.
8.2.2
Vinnufatnaður, skilgreining:
Starfsfólk mötuneyta, sjúkraliðar, heimilishjálp, fólk í heilbrigðisþjónustu og starfsfólk dvalarheimila: Stakkur/jakki, buxur, skyrta eða bolur.
Dalbær getur sett nánari reglur um vinnufatnað í samráði við stéttarfélag vegna liðar a.
Vegna öryggis og hlífðarfatnaðar skal fara eftir grein 8.2.1
8.2.3
Reglur um meðferð fatnaðar
Aðilar eru sammála um að eftirfarandi atriði skulu uppfyllt þegar starfsmanni er lagður til fatnaður:
- Fatnaður sem lagður er til af Dalbæ er eign þess.
- Þar sem því verður við komið, skal vinnufatnaður skilinn eftir á vinnustað að loknum vinnudegi.
- Starfsmenn skulu fara vel og samviskusamlega með vinnu- og hlífðarfatnað.
- Dalbær skal sjá um þrif og viðgerðir á öryggis- og hlífðarfatnaði.
- Er starfsmaður lætur af starfi, skal hann skila síðasta vinnu-, hlífðar og einkennisfatnaði er hann fékk.
- Sé starfsmanni afhentur vinnufatnaður til eignar (ekki hlífðar- eða öryggisfatnaður) skal hann sjálfur sjá um hreinsun og viðhald hans.
8.2.4
Borgaralegur fatnaður:
Þar sem sérstaklega er krafist borgaralegs fatnaðar í stað hefðbundins vinnufatnaðar við vinnu, t.d. á öldrunarheimilum, sambýlum og í dagþjónustu, skal hann látinn í té eða greiddir fatapeningar kr. 22,87 á unna klst. Á hjúkrunardeildum öldrunarstofnana, sem starfa samkvæmt Edenstefnunni eða þeim stofnunum sem taka mið af Edenstefnunni, bætist 20,02% álag á greidda fatapeninga.
Framangreind fjárhæð greiðist mánaðarlega. Fjárhæðin skal breytast 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingu fatnaðarliðar (031) í vísitölu neysluverðs með vísitölu októbermánaðar 2024 sem grunnvísitölu 150,7 stig.
8.2.5
Reglur um meðferð fatnaðar
Aðilar eru sammála um að eftirfarandi atriði skulu uppfyllt þegar starfsmanni er lagður til fatnaður:
Fatnaður sem lagður er til af sveitarfélaginu er eign þess.
Vinnufatnaður skal skilmerkilega merktur.
Þar sem því verður við komið, skal vinnufatnaður skilinn eftir á vinnustað að loknum vinnudegi.
Starfsmenn skulu fara vel og samviskusamlega með vinnu- og hlífðarfatnað.
Vinnuveitandi skal sjá um þrif og viðgerðir á öryggis- og hlífðarfatnaði.
Er starfsmaður lætur af starfi, skal hann skila síðasta vinnu-, hlífðar og einkennisfatnaði er hann fékk.
Sé starfsmanni afhentur vinnufatnaður til eignar (ekki hlífðar- eða öryggisfatnaður) skal hann sjálfur sjá um hreinsun og viðhald hans.