Fara í efni

Dalbær hjúkrunarheimili

Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir.

14. Gildistími og samningsforsendur

14.1 Gildistími

14.1.1

Gildandi kjarasamningar aðila með bókunum, fylgiskjölum og sérákvæðum framlengjast frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 með þeim breytingum og fyrirvörum sem í samkomulagi þessu felst og fellur þá úr gildi án frekari fyrirvara. 

14.2 Atkvæðagreiðsla

14.2.1

Kjarasamningur þessi er gerður í kjölfar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í mars 2024. Komi til þess að launa- og forsendunefnd ASÍ og SA ákveði launa- eða kjarabreytingar vegna forsendubrests skulu aðilar taka upp viðræður um með hvaða hætti slík breyting gildi fyrir samning þennan. Slíkar breytingar skulu skila sambærilegum kjarabreytingum og á almennum markaði enda feli þær ekki í sér breytingar á kjörum sem þegar er að finna í kjarasamningi aðila. 

Komi til þess að kjarasamningum á almennum markaði verði sagt upp á grundvelli forsenduákvæðis þeirra á gildistíma samnings þessa er hvorum aðila heimilt að segja samningi þessum upp með þriggja mánaða fyrirvara miðað við mánaðamót. 

14.3.1

Akureyri og Dalvík, 8. október 2024 (rafræn undirritun)

F.h. Hjúkrunarheimilis Dalbæjar með fyrirvara um samþykki stjórnar

Elísa Ingvarsdóttir (sign)

F.h. Kjalar stéttarfélags með fyrirvara um samþykki félagsmanna

Arna Jakobína Björnsdóttir (sign)