Hjúkrunarheimilið Fellsendi
Eldri bókanir s.s. Varðar akstursgreiðslur á Fellsenda
Bókun 3 [2015] - Um launaupplýsingar
Samningsaðilar eru sammála um að á gildistíma kjarasamnings verði samkomulag um skil á launaupplýsingum endurskoðað.
BÓKUN 5 [2015] Trúnaðarmenn
Aðilar eru sammála um að réttur trúnaðarmanna til að sækja trúnaðarmannanámskeið án skerðingar á reglubundnum launum í allt að eina viku á ári, á við um vaktavinnufólk sem heldur sínu vaktaálagi.
Bókun 3 [2014] - Um jafnræði í launum óháð stéttarfélagsaðild
Aðilar eru sammála um að beina þeim tilmælum til sveitarfélaga að jafnræðis verði gætt í launum þeirra starfsmanna sem vinna sömu og/eða sambærileg störf innan sveitarfélags, óháð stéttarfélagsaðild.
BÓKUN 6 [2015] Varðar akstursgreiðslur á Fellsenda
Aðilar eru sammála um að greitt verði fyrir akstur starfsmanna til og frá vinnu samkvæmt akstursgjaldi ríkisstarfsmanna eins og það er á hverjum tíma, nú kr, 111 (auglýsing fjármálaráðuneytisins nr. 1/2019). Fyrir hverja vakt verður greitt 45% af akstursgjaldinu og miðast vegalengdin við heimili/dvalastað starfsmanns á Fellsenda þó að hámarki 20 km. fyrir hverja ferð (40 km. Fyrir hverja vakt) Búi starfsmaðurinn í minna en 5 km. fjarlægð frá Fellsenda á hann ekki rétt á akstursgreiðslu samkvæmt þessari bókun Að auki skal greiða 1 launaflokk á hvert starfsheiti vegna sérstöðu stofnunarinnar og fjarlægðar frá þéttbýli.