Fara í efni

Orkubú Vestfjarða ohf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

18 Bókanir

18.1 Vinnutími

Vinnutími starfsmanna á aðalskrifstofu Stakkanesi mánudaga-fimmtudaga er frá kl. 8:00 til 16:00 þ.m.t. 30 mínútur í matarhlé sem ekki telst til vinnutíma. Á föstudögum er vinnutími frá kl.8:00 til kl.14:15 þ.m.t. 15 mínútur í neysluhlé sem telst ekki til vinnutíma. 

Vinnutími starfsmanna vinnuflokka mánudaga-fimmtudaga er frá kl.8:00 til kl.16:30 þ.m.t. 30 mínútur í matarhkér sem telst ekki til vinnutíma. Á föstudögum er vinnutími frá kl.08:00 til kl.12:00. Matartími/neysluhlé á föstudögum er felldur niður í samræmi við grein 3.1.2 í kjarasamningi. Velji starfsmenn að taka matarhlé í hádeginu á föstudegi telst það ekki virkur vinnutím og er því ekki greitt. 

Innfærð bókun úr samkomulag frá 7. júní 2021