Orkubú Vestfjarða ohf
4. Um orlof
4.1 Lengd orlofs
4.1.1
Frá og með 1. maí 2021 skal lágmarksorlof skal vera 216 vinnuskyldustundir (30 dagar) miðað við fullt ársstarf. Starfsmaður, sem hefur unnið hluta af fullu starfi eða hluta úr ári skal fá orlof 18 vinnuskyldustundir fyrir fullt mánaðarstarf. Þegar starfsmaður í vaktavinnu fer í orlof skal hann fá óyggjandi upplýsingar um hvenær hann skuli mæta á vakt að orlofi loknu og skal þá að jafnaði miða við að varðskrá haldist óbreytt.
4.1.2
Við 15 ára starfsaldur eða 50 ára aldur fær starfsmaður að auki orlof sem svarar til 21,6 vinnuskyldustunda í dagvinnu. Starfsaldur til orlofs skal reiknaður eftir sömu reglum og starfsaldur til launa.
4.2 Orlofsfé
4.2.1
Frá og með 1. maí 2020 skal starfsmaður fá 13,04% orlofsfé á yfirvinnu og álagsgreiðslur samkvæmt samningi þessum.
4.2.2
Lágmarksupphæð orlofsfjár fyrir fullt orlofsár skal nema 14% af maímánaðarlaunum orlofstökuársins í 120. launaflokki 5. þrepi
4.3 Orlofsárið
4.3.1
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.
4.4 Sumarorlofstími
4.4.1
Tímabil sumarorlofs er frá 15. maí til 30. september.
4.4.2
Starfsmaður á rétt á að fá 216 vinnuskyldustunda orlof sitt á sumarorlofstímabilinu. Eigi starfsmaður lengra orlof skv. 4.1.2. á hann rétt á að fá allt orlof sitt á sumarorlofstímabilinu, verði því við komið vegna starfa fyrirtækisins.
4.4.3
Sé orlof eða hluti orlofs tekið eftir að sumarorlofstímabili lýkur, skal sá hluti orlofsins lengjast um 1/3. Sama gildir um sumarleyfi sem tekin eru fyrir sumarorlofstímabil, samkv. beiðni yfirmanns.
4.5 Ákvörðun orlofs
4.5.1
Yfirmaður ákveður í samráði við starfsmenn hvenær orlof skuli veitt. Honum er skylt að verða við óskum starfsmanns um hvenær orlof skuli veitt á sumarorlofstíma ef því verður við komið vegna starfa fyrirtækisins. Yfirmaður skal að lokinni könnun á vilja starfsmanna tilkynna svo fljótt sem unnt er og í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs, hvenær orlof skuli hefjast, nema sérstakar ástæður hamli.
4.5.2
Við útreikning á nýttu orlofi starfsmanns skal tekið mið af hefðbundnum vinnutíma viðkomandi starfsmanns í samráði við yfirmann. Í þeim tilfellum sem vinnuskylda/dagvinna starfsmanna er ekki eins alla virka daga skal tekið tillit til þess við töku orlofs. Jafnan er reiknað með að starfsmenn taki orlof í heilum dögum, en heimilt er að taka orlof í hálfum dögum.
Orlofstaka er reiknuð í klst. í samræmi við hefðbundinn vinnutíma starfsmannsins.
4.6 Veikindi í orlofi
4.6.1
Veikist starfsmaður í orlofi telst sá tími, sem veikindum nemur ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með læknisvottorði, að hann geti ekki notið orlofs.
4.7 Frestun orlofs
4.7.1
Nú tekur starfsmaður ekki orlof eitthvert ár og á hann þá rétt á, með samþykki yfirmanns, að leggja saman orlof þess árs og hins næsta til orlofstöku síðara árið.
4.7.2
Nú tekur starfsmaður ekki orlof eða hluta af orlofi skv. beiðni yfirmanns síns og geymist þá orlofið til næsta árs ella ber honum þá yfirvinnukaup fyrir starf sitt þann tíma. Annars er starfsmönnum óheimilt að taka vinnu í stað orlofs í starfsgrein sinni.
4.8 Áunninn orlofsréttur
4.8.1
Greiða skal maka, börnum innan 16 ára aldurs eða öðrum er látinn starfsmaður hafði á framfæri sínu, áunninn orlofsrétt hans. Annars skal orlof renna til dánarbús.