Fara í efni

Orkubú Vestfjarða ohf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

17. Ræstíng

17.1 Uppmæling og tímakaup

17.1.1

Ræsting hjá O.V. skal vera samkvæmt uppmælingu pr. fermeter á mánuði samkvæmt sérstökum samningi.

17.1.2

Öll umfram ræsting eða þrif skal greidd með tímakaupi, sem fundið er út samkvæmt lið 1.4.1 og 1.5.1.

17.2 Verklag

17.2.1

Í ræstingu felst að halda hreinum gólffleti, gólflistum, borðum, stólum, gluggakistum, hreinlætistækjum og losa ruslafötur, þurrka af símtólum og þurrka kringum hurðarhúna svo og afþurrkun af skápum og hillum í augnhæð. Til verksins skal ræstingafólk fá þau tæki er til þarf og eðlilegt má telja.   

17.2.2

Ræstingafólk má ekki hreyfa við pappírum eða öðru á skrifborðum eða hillum,  en ber að þurrka af í kring, sé þess kostur. Ræstingafólk skal ekki þurrka af eða hreinsa skrifstofuáhöld, svo sem tölvur eða tölvuskjái, reiknivélar eða lík áhöld.