Fara í efni

Orkubú Vestfjarða ohf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

16. samkomulag um starfskjaranefnd

16.1 Hlutverk starfskjaranefndar

Hlutverk starfskjaranefndar er:

  1. Að jafna ágreining um vinnutíma einstakra starfsmanna
  2. Að leita sátta í málum sem rísa kunna milli samningsaðila út af meintum brotum á gildandi kjarasamningum og ágreining um skilning og túlkun á gildandi kjarasamningum.
  3. Að gera tillögur um röðun starfa í launaflokka.
  4. Að fara með og leita sátta í málum um mat á starfsaldri einstakra starfsmanna.
  5. Að taka við umsóknum um endurmat starfa.

16.2 Málsmeðferð hjá starfskjaranefnd

Málsmeðferð hjá starfskjaranefnd

  1. Nefndin skal afgreiða skriflega innan mánaðar öll mál sem henni berast og leggja niðurstöður fyrir viðkomandi aðila.
  2. Nefndin skal veita samninganefndum allar upplýsingar sem mögulegt er við gerð nýrra kjarasamninga. 
  3. Hafi starfskjaranefnd til umfjöllunar mál starfsmanns sem situr í nefndinni skal sá hinn sami víkja sæti sökum vanhæfis og varamaður taka sæti hans. Þá getur næsti yfirmaður viðkomandi starfsmanns orðið vanhæfur til að sitja í nefndinni sé ákvörðun hans til umfjöllunar.
  4. Starfskjaranefnd heldur fundargerðir um fundi sína.