Fara í efni

Orkubú Vestfjarða ohf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

14. Skilagreinar á starfsheitum

14.1 Línumenn

Línumenn eru rafiðnaðarmönnum til aðstoðar við störf þeirra. Línumenn vinna að jafnaði undir verkstjórn rafiðnaðarmanna.  Línumaður 2 starfsmaður á 1. til 3. ári.     Línumaður 3 eftir 3 ára starf eða hæfnismat verkstjóra.

14.2 Ófaglært starsfólk

Ófaglært starfsfólk 2, starfsmaður á 1.til 3. ári.  Ófaglært starfsfólk 3, eftir 3 ára starf

14.3 Skrifstofustörf

Skrifstofustörf 1:  Almenn skrifstofustörf þar sem ekki er krafíst sérþekkingar, sjálfstæðrar vinnu eða frumkvæðis.  Skrifstofustörf 2:  Skrifstofustörf þar sem krafist er töluverðar sérþekkingar og frumkvæðis, svo og sjálfstæðis í vinnu án beinna fyrirmæla yfirmanns.

14.4 Sprengistjórar

Starfsmenn sem hafa réttindi sprengistjóra og þurfa að nýta þau réttindi í starfi hjá OV skulu fá einn launaflokk ofan á grunnlaun vegna þeirrar auknu ábyrgðar er í starfinu felst.
 

 

14.5 Raffræðingar

Starf þar sem krafist er raffræðings er uppfyllir kröfur um B löggildingu skal raðast einum launaflokki ofar en viðkomandi starf er grunnraðað.
Starf þar sem krafist er raffræðings er uppfyllir kröfur um A+B löggildingu skal raðast tveim launaflokkum ofar en viðkomandi starf er grunnraðað.