Orkubú Vestfjarða ohf
13. Launaseðill, félagsgjöld og iðgjaldagreiðslur
13.1 Launaseðill
13.1.1
Við greiðslu launa til starfsmanns á hann rétt á að fá launaseðil merktan nafni sínu.
13.1.2
Á launaseðli skulu tilgreind föst laun starfsmanns það tímabil, sem greiðslan tekur til, starfsaldur, orlofsréttur, grunn-launaflokkur, fjöldi yfirvinnustunda og sundurliðun einstakra tekna og frádráttarliða, sem leiða til útgreiddra launafjárhæða.
13.2 Félagsgjöld
13.2.1
Kjölur stéttarfélag á rétt á því að launagreiðandi innheimti fyrir það félagsgjöld. Skal það afhenda honum lista eða gögn um þá sem gjaldskyldir eru með þeim upplýsingum sem nauðsyn krefur. Félagsgjöld skulu innheimt mánaðarlega og skilað til félaganna fyrir 10. dag sama mánaðar. Innheimtu má þó hafa með öðrum hætti en hér er ákveðið, ef um það er samkomulag. Samningsaðilar munu sameiginlega leitast við að gera og viðhalda félagsskrám Stéttarfélagsins vegna gjaldskyldu skv. framansögðu.
13.2 Orlofssjóður
13.3.1
Launagreiðandi greiðir 0,5% af öllum launum fastráðinna starfsmanna í orlofssjóð stéttarfélagsins.
13.4 Starfsmenntunarsjóður
13.4.1
Launagreiðandi greiðir sérstakt gjald í starfsmenntunarsjóð, sbr. gr. 10.4. Gjald þetta skal nema 0,40% af heildarlaunagreiðslum til félagsmanna stéttarfélagsins.
13.4.2
Fyrirkomulag um skipan og starfsemi starfsmenntunarsjóða er ákvörðun í hverju sveitafélagi, með samþykki beggja aðila.
13.5 Styrktarsjóður Klettur
13.5.1
Launagreiðandi greiði til styrktarsjóðs Kletts samkvæmt reglum sjóðsins. Iðgjaldið 0,75% af öllum launum, skal greitt mánaðarlega eftirá skv.útreikningi launagreiðanda.
13.6 Endurhæfingarsjóður
13.6.1
Frá 1. desember 2008 greiðir Orkubú Vestfjarða ohf. 0,13% gjald af heildarlaunum starfsmanna í endurhæfingarsjóð sem starfar samkvæmt sérstöku samkomulagi aðila vinnumarkaðarins.
| VIRK Starfsendurhæfingarsjóður Hlutverk VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna langvarandi veikinda eða slysa. Áhersla er lögð á að koma snemma að málum og viðhalda vinnusambandi einstaklinga með virkni og öðrum úrræðum. Einstaklingar sem ekki geta sinnt starfi sínu sökum heilsubrests og stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði eiga rétt á þjónustu ráðgjafa VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs. Um er að ræða ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem er starfsmönnum að kostnaðarlausu og miðuð við metnar þarfir hvers og eins. |