Orkubú Vestfjarða ohf
11 Um Réttindi og skyldur
11.1 Áunnin réttindi
Um starfsmenn O.V. gilda neðanskráðar reglur um réttindi og skyldur þeirra, þó þannig að um þá starfsmenn, sem ráðnir voru fyrir 1, mars 1997 gilda að auki eftirfarandi ákvæði um áunnin réttindi:
“Nú er staða lögð niður og skal þá starfsmaður jafnan fá föst laun, er starfanum fylgdu greidd í 6 mánuði frá því að hann lét af starfi, ef hann hefur verið í þjónustu O.V. skemur en 15 ár, en í 12 mánuði, eigi hann að baki lengri þjónustualdur, enda hafi hann þá ekki hafnað annarri sambærilegri stöðu á vegum O.V., innan þess sveitafélags er viðkomandi á lögheimili í. Ef sama staða er aftur stofnuð innan 5 ára, á starfsmaður að öðru jöfnu rétt til hennar. Nú hefur maður verið leystur frá starfi vegna þeirra orsaka, sem um getur í grein þessari, eða annarra atvika, sem honum verður ekki sök á gefin og skal hann þá í 5 næstu ár að öðru jöfnu sitja fyrir um starf í þjónustu O.V., er losna kann, ef hann sækir um það.
Starfsaldur hans áður og eftir skal saman lagður og veitir þá sömu réttindi sem óslitin þjónusta.
Nú tekur maður, er launagreiðslna nýtur samkvæmt 1. mgr., við starfi í þjónustu ríkis eða sveitafélaga, áður en liðinn er 6 eða 12 mánaða tíminn, og skulu þá launagreiðslur samkvæmt þessari grein falla niður, ef laun þau er nýja starfinu fylgja, eru jöfn eða hærri en þau, er hann naut í fyrri stöðunni. Ef launin í nýju stöðunni eru lægri, skal greiða starfsmanni launamismuninn til loka 6 eða 12 mánaða tímabilsins.”
11.1.1
Allar lausar stöður hjá O.V. skulu auglýstar innan fyrirtækisins áður en þeim verður ráðstafað.
11.1.2
Ætíð skal gera skriflegan ráðningarsamning við starfsmann, sbr. Samning aðila um ráðningarsamning og tilskipun 91/533/EBE
11.1.3
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er þrír mánuðir. Á fyrstu þremur mánuðum, sem er reynslutími er hann þó einn mánuður. Sjá þó grein 11.1.6
11.1.4
Skylt er starfsmanni að hlíta breytingum á störfum sínum og verksviði frá því hann tók við starfi. Umtalsverðar breytingar ber að tilkynna með sama fyrirvara og ef um uppsögn væri að ræða. í slíkum tilvikum ber starfsmanni að tilkynna vinnuveitanda innan mánaðar hvort hann uni breytingunum eða muni láta af störfum, eftir þann tíma, sem uppsagnarfrestur kveður á um, frá því að honum var tilkynnt um breytinguna með formlegum hætti. Ef breytingarnar hafa í för með sér skert launakjör eða réttindi skal hann halda óbreyttum launakjörum og réttindum jafn langan tíma og réttur hans er til uppsagnarfrests skv. samningi þessum. Ef starfsmanni er falin aukin ábyrgð sem er sannanlega umfram ráðningarsamning skal sú ábyrgð færð inn í samninginn. Í þeim tilfellum þar sem um verulegar breytingar er að ræða er nýr samningur undirritaður, en annars eru breytingar færðar inn í fyrri samning sem báðir aðilar samþykkja með áritun sinni eða a.m.k. með upphafsstöfum enda komi þar fram hugsanlegar breytingar á ráðningarkjörum.
11.1.5
Vinnuveitandi ákveður vinnutíma þeirra starfsmanna sem starfa hjá honum að því marki, sem lög og kjarasamningur þessi leyfa. Skylt er starfsmönnum að vinna yfirvinnu, sem vinnuveitandi telur nauðsynlega. Þó er engum starfsmanni, nema þeim er gegnir öryggisþjónustu, skylt að vinna meiri yfirvinnu í viku hverri en nemur fimmtungi af lögmætum vikulegum vinnutíma.
11.1.6 Áminning
11.1.6
Ef ástæða er talin til að veita starfsmanni áminningu er skylt að gefa honum fyrst kost á að tjá sig um málið. Óski starfsmaður þess skal það gert í viðurvist trúnaðarmanns. Ef talið er að fyrir liggi ástæður til uppsagnar sem rekja megi til starfsmannsins sjálfs, er skylt að áminna starfsmanninn fyrst skriflega og veita honum tíma og tækifæri til að bæta ráð sitt áður en gripið er til uppsagnar. Uppsögn skal ávalt vera skrifleg og óski starfsmaður þess skal rökstuðningur einnig vera skriflegur. Óheimilt er að segja starfsmanni upp án málefnalegra ástæðna.
11.1.7
Nú er starfsmaður leystur frá starfa vegna vanheilsu eða slysa, sem honum verður ekki með skynsamlegu mati gefin sök á og ber þá að greiða honum þau föstu laun, er stöðu hans fylgja, í þrjá mánuði. Nú tekur maður, sem látið hefur af starfi vegna vanheilsu, aftur við starfi í starfsgrein sinni og skal þá starfsaldur hans áður og eftir lagður saman og veitir þá sama rétt og óslitin þjónusta. Um greiðslur til maka látins starfsmanns fer eftir ákvæðum 1. mgr.
11.1.8
Þegar metinn er veikindaréttur starfsmanns, skal auk þjónustualdurs hjá Orkubúi Vestfjarða einnig telja þjónustualdur hjá sveitafélögum og stofnunum þeirra, ríkinu og sjálfseignarstofnunum, sem kostaðar eru að meirihluta til af ríkinu eða eru í meirihluta eign ríkisins.
11.1.9 Starfslok
11.1.9
Starfsmaður lætur af starfi sínu næstu mánaðamót eftir að hann nær 70 ára aldri.
11.1.10 Fæðingarorlof
11.1.11
Um uppsöfnun og vernd réttinda í fæðingarorlofi fer skv. 14. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 144/2020, þó með þeirri viðbót sem talin er upp hér á eftir.
11.1.12
Starfsmaður sem hefur töku fæðingarorlofs telst skv. framangreindu vera leystur undan vinnuskyldu á meðan á fæðingarorlofi hans stendur, sbr. 29. gr. framangreindra laga.
11.1.13
Starfsmaður sem er í a.m.k. 20% starfi og starfað hefur í samfellt sex mánuði fyrir fæðingu barns síns hjá hlutaðeigandi launagreiðenda nýtur í fæðingarorlofi réttinda til greiðslu sumarorlofs, persónu- og orlofsuppbótar.
11.1.14
Starfsmaður er áfram í þeim lífeyrissjóði(um) sem hann hefur tilheyrt sem starfsmaður launagreiðanda.
11.1.15 Fyrirframgreiðsla launa
11.1.15
Starfsmaður sem nýtur fyrirframgreiðslu launa skal eiga rétt til fyrirframgreiðslu frá launagreiðanda þann mánuð sem hann hefur töku fæðingarorlofs og fellur sá réttur niður þann mánuð sem hann kemur til baka úr fæðingarorlofi.