Fara í efni

Orkubú Vestfjarða ohf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

1. Um kaup

1.1 Föst Mánaðarlaun

1.1.1

Föst mánaðarlaun starfsmanns, sem gegnir fullu starfi, skulu vera samkvæmt meðfylgjandi launatöflu frá og með gildistíma samnings þessa og samkvæmt nánari ákvæðum hans. Útgefin launatafla hverju sinni, nær yfir alla launaflokka, sem miðað er við í kjarasamningi þessum. Á samningstímanum skulu laun hækka, sem hér segir:

Laun og launatöflur taka hlutfallshækkun, með krónutöluhækkun að lágmarki. Með mánaðarlaunum er átt við föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu.

  • 1. febrúar 2024: 3,25% eða 23.750 kr.

  • 1. janúar 2025: 3,50% eða 23.750 kr.

  • 1. janúar 2026: 3,50% eða 23.750 kr.

  • 1. janúar 2027: 3,50% eða 23.750 kr


Launatafla sem gildir árið 2026

Launatafla sem gildir árið 2027

1.1.2

Brot úr mánaðarlaunum reiknast þannig, að deilt er með 21,67 í mánaðarlaunin og margfaldað með fjölda almanaksdaga annarra en laugardaga og sunnudaga frá upphafi eða til loka starfstíma.

1.1.3

  1. Kjaratengdir liðir kjarasamninga hækka sem hér segir, nema um annað hafi verið samið:
  • 1. febrúar 2024: 3,25%

  • 1. janúar 2025: 3,50%

  • 1. janúar 2026: 3,50%

  • 1. janúar 2027: 3,50%

1.1.4

Brot úr mánaðarlaunum reiknast þannig, að deilt er með 21,67 í mánaðarlaunin og margfaldað með fjölda almanaksdaga annarra en laugardaga og sunnudaga frá upphafi til loka starfstímans.

1.1.5

Komi til þess að samningum á almennum vinnumarkaði verði sagt upp á grundvelli forsenduákvæðis þeirra á gildistíma samnings þessa, skal aðilum heimilt að segja launalið samningsins upp með þriggja mánaða fyrirvara miðað við mánaðamót. Komi til þess að nefnd sú sem fjallar um forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, nái samkomulagi um breytingu á samningum, skal sambærileg breyting gilda um þennan samning.

1.2 Launaþrep og starfsaldur

1.2.1

Hver launaflokkur skiptist í 7 launaþrep, sem eru miðuð við starfsaldur sem hér segir:

1. þrep  Byrjunarlaun.
2. þrep  Eftir 6 mánuði starfsaldur.
3. þrep  Eftir 1 árs starfsaldur.
4. þrep  Eftir 3 ára starfsaldur.
5. þrep  Eftir 5 ára starfsaldur.
6. þrep  Eftir 7 ára starfsaldur.
7. þrep  Eftir 10 ára starfsaldur

 

1.2.2

Starfsaldurshækkun sú, sem ákveðin er í launastiganum ákvarðast eftir mánaðafjölda í starfi, sem nemur hálfu starfi eða meiru. Telst hálfur mánuður og stærra brot úr mánuði sem heill mánuður. Öðrum dögum skal sleppt. Með starfsaldri er átt við samfelldan starfstíma í a.m.k. hálfu starfi, í tvo mánuði eða lengur. Þó skal telja með starf sem nemur einum þriðja úr starfi, eða meir, enda hafi það starf verið aðalstarf viðkomandi og launað skv. launakerfi opinberra starfsmanna.

1.2.3

Eftir 2ja ára starf hjá O.V. hækka laun starfsmanns um tvo launaflokka, eftir 5 ára starf um einn launaflokk.

1.2.4

Starfsaldur telst sá tími sem starfsmaður hefur unnið hjá ríki, sveitafélögum og stofnunum, sem styrktar eru af almannafé (t.d. heilbrigðis- og menntastofnanir) og tekið laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna. Sé um starf í sömu starfsgrein að ræða, skal einnig telja til starfsaldurs, tíma sem unnin hefur verið hjá þessum aðilum, þó laun hafi ekki verið skv. launakerfi opinberra starfsmanna, Á sama hátt skulu þau störf, sem innt eru af hendi erlendis, metin að fullu til starfsaldurs.

1.2.5

Við ákvörðun starfsaldurs er heimilt að taka til greina starfstíma hjá öðrum vinnuveitendum en því opinbera á þann hátt að við starfsaldur sé bætt starfstíma að fullu fyrstu 6 árin en að hálfu næstu 12.

1.2.6

Launabreytingar vegna viðurkenningar á starfsaldri hjá öðrum en Orkubúinu skulu reiknast allt að sex mánuði aftur í tímann. Þó þannig að berist fullnægjandi gögn á tímabilinu frá 1. janúar - 1. júlí skal breyting taka gildi frá janúar, ef tilefni er til, annars frá 1. júlí berist gögn á tímabilinu frá 1 .júlí til 31. desember.

1.2.7

Almennt ákvæði varðandi þá, sem fá röðun vegna ákveðinnar starfsmenntunar, skal vera, að starfsaldur sé metinn vegna starfa unnum í greininni eftir próf.
Dæmi: Iðnaðarmaður frá sveinsprófi.

1.2.8

Launagreiðandi greiði 0,10% gjald af heildarlaunum í sjóð er styrki starfsmenn Orkubús Vestfjarða, sem eru félagar Kjalar  stéttarfélags , í kynnisferðir til orkuveitna og/eða á sýningar erlendis tengdar orkumálum. Stefnt skal að því að annað hvert ár verði styrktir tveir starfsmenn til slíkra ferða. Sjóði þessum skal sett 4 manna stjórn, tveir frá O.V. og tveir frá starfsmönnum, er annast úthlutun úr sjóðnum eftir umsóknum. Sjóðnum er jafnframt heimilt að greiða kostnað vegna námskeiða sem efla starfsfólk í starfi.

1.3 Tímavinnulaun

1.3.1

Tímavinnukaup í dagvinnu er 0,615% af mánaðarkaupi í þeim launaflokki og því launaþrepi sem viðkomandi starfsmaður er í.

1.4 Yfirvinnulaun

1.4.1

Yfirvinna er greidd með tímakaupi. Tímakaup fyrir yfirvinnu í hverjum launaflokki er 1,0385% af mánaðarlaunum miðað við það launaþrep, er viðkomandi starfsmaður tekur laun eftir.

1.4.2

Öll vinna sem unnin er á stórhátíðardögum (sbr. 2.2.3.), greiðist með tímakaupi, sem nemur 2,077% af mánaðarlaunum miðað við það launaþrep, er starfsmaður tekur laun eftir.

1.5 Álagsgreiðslur

1.5.1

Vaktaálag er greitt til þeirra starfsmanna sem vinna vaktavinnu, bakvaktir og aðra vinnu sem fellur utan dagvinnutímabils en er hluti vikulegrar vinnuskyldu (sbr. gr. 2.2.3.). Vaktaálag er greitt vegna afbrigðilegs og óþægilegs vinnutíma.

1.5.2

Vaktaálag fyrir hverja klst. skal vera 33,33% af dagvinnukaupi viðkomandi starfsmanns á tímabilinu kl 17:00 - 24:00. 

Á tímabilinu frá kl 00:00 - 08:00 svo og á laugardögum, sunnudögum og sérstökum frídögum sbr. 2.1.4.2. greiðist 45%.

 Á stórhátíðardögum, sbr. 2.2.3. greiðist 90%. Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.

1.5.3 Hæðarálag

Greiða skal rafiðnaðarmönnum 20% hæðarálag fyrir hverja klukkustund sem unnin er í tengivirkjum, möstrum og staurum í 6 metra hæð eða ofar.

1.6.3

Greiðsla fyrir bakvakt á dagvinnutímabili er 33,33% vaktaálag.

1.6 Desemberuppbót

1.6.1

Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. maí og 1. desember ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.Hafi starfsmaður gengt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Tímavinnumaður fær fulla persónuuppbót ef hann vinnur 1504 virkar vinnustundir. Greitt skal hlutfallslega miðað við unna tíma og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag. 

Hafi starfsmaður látið af störfum á árinu vegna aldurs skal hann fá greidda persónuuppbót hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. 

Sama hlutfallsregla gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs sbr. 8. gr. laga nr. 144/2020. Sjá einnig gr. 11.1.8.

Persónuuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofslaun.

Áunnin persónuuppbót skal gerð upp við starfslok starfsmanns.

Persónuuppbót miðað við 100% starfshlutfall á samningstímanum verður sem hér segir: 

1. maí 2024kr.  57.500
1. desember 2024kr. 135.500
1. maí 2025 kr.  59.500
1. desember 2025kr. 140.000
1. maí 2026kr.  62.000
1. desember 2026kr. 145.000
1. maí 2027 kr.  64.000
1. desember 2027kr. 150.000

1.6.2

Starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fái greidda persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs.

1.6.3

Persónuuppbót skv. 1.6.1. greiðist starfsmönnum sem fóru á eftirlaun á árinu. enda hafi þeir skilað starfi er svari til a.m.k. hálfs starfsárs það ár. Sama regla gildir um þá, sem sökum heilsubrests minnka við sig starf, enda liggi fyrir um það vottorð trúnaðarlæknis Orkubúsins.

1.7 Sérstök orlofsuppbót

1.7.1

Hinn 1. júní skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl fá greidda sérstaka orlofsuppbót er nemi 50% af launaflokk 135.1. þrep, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

1.7.2

Hafi starfsmaður látið af störfum og hafið töku eftirlauna á orlofsárinu skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður lætur af störfum eftir 5 mánaða samfellt starf á orlofsárinu. Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofsfé.

1.8 Lífeyrissjóðir

1.8.1

Á móti 4% framlagi starfsmanns af öllum launum í almenna lífeyrissjóði greiðir Orkubúið 11,5%

1.8.2 Séreignasjóður

Leggi starfsmaður a.m.k. 2% viðbótarframlag í séreignarsjóð skal mótframlag OV vera 2%.