Fara í efni

Norðurorka hf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

Viðauki 2 Um lífeyrismál

Samkomulag um lífeyrismál

Um lífeyrismál starfsmanna Norðurorku sem aðild eiga að Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar við breytingu félagsins í hlutafélag

Aðilar samnings þessa eru Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar (LSA) kt. 510169-3799, Strandgötu 3, 600 Akureyri annars vegar og Norðurorka kt. 550978-0169, Rangárvöllum, 603 Akureyri hins vegar. Undirskrift Norðurorku er einnig bindandi fyrir Norðurorku hf. kt. 550978-0169

Tilgangur samnings þessa er að ákvarða um lífeyrisréttindi starfsmanna Norðurorku sem aðilar eru að Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar við breytingu Norðurorku í hlutafélag – Norðurorku hf. Breytingin tekur gildi þann 1. janúar 2003. Markmið samningsins eru að lífeyrisréttindi téðra starfsmanna skuli vera sambærileg við það sem þau voru fyrir ofangreinda formbreytingu fyrirtækisins, bæði hvað tekur til áunninna réttinda og ávinnslu framtíðarréttinda.

Vísað er til breytingar á formi Norðurorku yfir í hlutafélag, þ.e. að Norðurorka breytist í Norðurorku hf. sem “aðilabreytingu” í samningi þessum. Vísað er til þess er starf er lagt niður hjá eldra félagi og sama starf hafið hjá nýju félagi sem “yfirfærslu” í samningi þessum.

1.grein

Samningur þessi tekur til lífeyrisréttinda þeirra starfsmanna Norðurorku sem eru aðilar að Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar við breytingu Norðurorku í hlutafélag þann 1. janúar 2003. Jafnframt tekur samningur þessi til áunninna réttinda fyrrum starfsmanna Norðurorku sem ekki greiða lengur til LSA en eiga geymd réttindi í sjóðnum. 

2.grein

Sjóðfélagi sem er greiðandi til sjóðsins við aðilabreytinguna á rétt á að vera áfram í sjóðnum og greiða iðgjöld sem miðuð eru við þau föstu dagvinnulaun er  hann hafði við yfirfærslu. Frá þeim tíma skulu iðgjaldagreiðslur breytast í samræmi við meðalbreytingar sem verða á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu (launavísitala). Á sama hátt skal úrskurðaður lífeyrir viðkomandi starfsmanns miðast við áunnið réttindahlutfall af ofangreindum launum að viðbættum breytingum á launavísitölu fram til þess tíma. 

3.grein

Yfirfærsla vegna aðilabreytingar skal ekki hafa áhrif á réttindi sjóðfélaga skv. svokölluðum 32ja og 95 ára reglum.

4. grein

Samningsaðilar eru sammála því að iðgjöld vegna réttindauppbyggingar í sjóðnum verði samtímaiðgjöld. Í því felst að tryggingafræðingi LSA, verði falin útreikningur á því hvert mótframlag Norðurorku hf. þarf að vera eftir aðilabreytingu til að núvirði framtíðariðgjalda samsvari þeim framtíðarskuldbindingum sem þau skapa vegna þess tímabils og þeirra starfsmanna sem iðgjaldið er greitt fyrir. Miðað er við að iðgjald launamanns af viðmiðunarlaunum sbr. 2.grein verði hið sama og það er fyrir yfirfærslu. Við greiðslu mótframlags í samræmi við ofangreind ákvæði ber Norðurorka hf. ekki frekari ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins vegna þess tímabils og þeirra starfsmanna sem slíkt mótframlag er greitt fyrir. 

5.grein

Samningsaðilar eru sammála því að Norðurorka hf. geri upp áfallnar skuldbindingar Norðurorku með skuldabréfi, sem tryggt verði með fullnægjandi hætti. Téð áfallin skuldbinding skal byggð á tryggingafræðilegu mati sem unnið skal af trygginga-fræðingi og miðast við uppgjörsdag. Þegar Norðurorka hf. hefur, eftir aðilaskipti, gert upp skuldbindingu sína með útgáfu skuldabréfs samkvæmt þessari grein, ber fyrirtækið ekki frekari ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins eða vegna þeirra starfsmanna sem uppgjörið tekur til. 

6.grein

Nýir starfsmenn, sem koma til starfa hjá Norðurorku hf. eiga ekki rétt á að greiða iðgjöld til LSA og gildir þá einu þótt þeir hafi verið greiðandi sjóðfélagar til LSA í því starfi sem þeir gegndu áður en þeir réðust til starfa á Norðurorku hf. eftir aðilaskipti. 

Akureyri 11. febrúar 2002 

Fh. Lsj. starfsmanna Akureyrarbæjar                        Fh. Norðurorku

Með fyrirvara um samþykki stjórnar                           Með fyrirvara um samþykki stjórnar

Kristján Þór Júlíusson (sign)                                       Páll Tómasson (sign)

Kári Arnór Kárason                                                     Franz Árnason