Fara í efni

Norðurorka hf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

Inngangur

/cdn/documents/Logo-allskonar-taknmerki-og-myndir/NO.gif?v=1785405413

Kjarasamningur þessi gildir frá og með 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028 og fellur þá úr gildi án sérstakrar uppsagnar. Hann felur í sér breytingar og viðbætur við kjarasamninga Norðurorku hf. og stéttarfélaga sem aðild eiga að samningi þessum. 

Kjarasamningur þessi byggir á Stöðugleikasamningum sem undirritaður var milli SA og sambanda og félaga ASÍ í mars 2024. Meginmarkmið Stöðugleikasamningsins er að stuðla að minnkun verðbólgu og lækkun vaxta, sem er mikið hagsmunamál heimila og fyrirtækja. Jafnframt er markmið samningsins að auka kaupmátt launafólks, skapa fyrirsjáanleika í efnahagslífinu, draga úr verðbólguvæntingum og styrkja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Samningur þessi tekur til starfsmanna Norðurorku hf. sem eru fullgildir félagar Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu. Varðandi starfsmenn sem voru í starfi við undirritun samningsins 26. ágúst 2005 eru undanskildir kaflar nr. 4, 10, 11, 12 og greinar 13.5 og 13.7, en í stað þeirra gildir fylgiskjal I um réttindi þeirra og skyldur.