Fara í efni

Norðurorka hf

Gildistími: 1. febrúar 2024 til 1.febrúar 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir og launatöflur.

Fylgiskjöl 1 - launatöflur

Fylgiskjal 1: Launatöflur

/cdn/documents/Kjarasamningar/launatafla-NO2026.png?v=1788253065
/cdn/documents/Kjarasamningar/launatafla-NO2027.png?v=1788253114

Fylgiskjal 2: Launatöfluauki

Launatöfluauki fyrir kjarasamninstímabilið 2024 til 2028

Launatöfluauka er ætlað að tryggja að þróun launakostnaðar félagsfólks Kjalar hjá fyrirtækinu, sem tekur laun skv. launatöflu kjarasamnings þessa, haldi að jafnaði í við þróun launakostnaðar sambærilegra launþegahópa á almenna vinnumarkaðnum en honum er ekki ætlað að tryggja þróun launakostnaðar einstakra starfsmanna. Launatöfluauki hefur ekki áhrif á umsamdar launahækkanir í kjarasamningum.

Samkvæmt þessu samkomulagi skal bera saman þróun á launakostnaði félagsfólks við þróun launakostnaðar sambærilegra launþegahópa á almennum markaði. 

Á gildistíma kjarasamningsins skal í þrjú skipti bera saman þróun á launakostnaði skv. ofangreindu þar sem upphaf tímabils í öllum mælingum er desember 2023. Þá skal horft til þróunar tímakaups grunnlauna (vísitölu grunnlauna sambærilegra launþegahópa á almennum markaði,  gefin út af Hagstofu Íslands) á tímabilinu. Auk þess skal horft til þróunar annars launakostnaðar sem samið er um í kjarasamningi og reiknast almennt til kostnaðar við kjarasamningsgerð s.s. hækkun iðgjalda í sjóði, breytinga á vinnufyrirkomulagi eða réttindum. Aðilar skulu komast að sameiginlegri niðurstöðu um upphæð launatöfluauka starfsmanna út frá:

  1. Meðaltali paraðra breytinga tímakaups grunnlauna að viðbættum föstum greiðslum á borð við fasta ómælda yfirvinnu og fastar aukagreiðslur viðkomandi hóps m.v. þróun vísitölu grunnlauna sambærilegra launþegahópa á almennum markaði
  2. Þróun annars launakostnaðar félagsfólks hjá OV, og tekur laun skv. launatöflu kjarasamnings þessa, m.v. sambærilega launþegahópa á almennum markaði

Uppgjör launatöfluauka miðast við útreikninga á liðum 1 og 2 hér að ofan milli síðasta desembermánaðar og desember 2023 og skal uppgjörið taka gildi 1. september ár hvert á tímabilinu 2025-2027. 

Við mat á þróun sambærilegra launþegahópa verður litið til samsetningar félagsfólks Kjalar hjá fyrirtækinu, sem tekur laun skv. launatöflu kjarasamnings þessa, og vísitala reiknuð sem byggir á veginni þróun launa og launakostnaðar eftirtalinna stétta á almennum markaði. Hlutfall miðast við samsetningu við undirritun samnings þessa en verður endurskoðað verði veruleg breyting á samsetningu félagsfólks hjá fyrirtækinu:

Stétt                                                     ÍSTARF                                   Hlutfall

Tæknar og sérmenntað starfsfólk           Bálkur 3                                   19%
Iðnaðarmenn                                        7 og stöðutala 2,3                    26%
Skrifstofufólk                                         Bálkur 4                                   10%
Verkafólk                                               7,8,9 og stöðutala 0,1               45%

Viðmiðunartímabil og uppgjör launatöfluauka

ViðmiðunartímabilBreytt launatafla tæki gildi
desember 2023 - desember 20241.september 2025
desember 2023 - desember 20251.september 2026
desember 2023 - desember 20261.september 2027

Komi í ljós að mæld þróun launakostnaðar sé lakari en hjá samanburðarhópi á almennum vinnumarkaði skal starfsfólk fá bætt 80% af þeim mismun í formi launatöfluauka og kemur hann aðeins til framkvæmdar ef mismunurinn er yfir 0,5%. Sé þróunin lakari á síðasta viðmiðunartímabilinu þá fellur niður skilyrði um mismun yfir 0,5% og laun hækkuð sem nemur 90% af mældum mismun þann 1.september 2027. Verði þróunin hins vegar starfsfólki í hag skal ekkert aðhafst. 

Launatöfluauka verður ráðstafað sem hækkun á grunnlaunum og föstum greiðslum starfsfólks eða eftir nánara samkomulagi aðila. 

Sýnidæmi um fyrirkomulag á launatöfluauka – mat og uppgjör  
 Samanburðarhópur á almennum markaðiFélagsfólk hjá OV 
Vísitala launakostnaðar í desember 2023100100
Hækkun vísitölu grunnlauna samanburðarhóps skv. mati Hagstofu Íslands og vísitölu grunnlauna að viðbættum föstum greiðslum á borð við fasta ómælda yfirvinnu og fastar aukagreiðslur 6,00%5,00%
Hækkun á launakostnaði s.s. orlof, breyting á álagsprósentum o.fl.0,70%0,50%
Vísitala launakostnaðar síðasta desember mánaðar106,70105,50
Hlutfallsleg hækkun, % (106,7/105,5-1) -1,14%
Launatöfluauki (80% af mismuni)   0,91%

Við útreikning á launatöfluauka verður hafður sá háttur á að einn fulltrúi fyrirtækis auk eins starfsmanns SA rýni upplýsingar um launaþróun á viðmiðunartímabili í hlutaðeigandi fyrirtæki auk tveggja starfsmanna Kjalar. Vinnan fer fram á skrifstofu OV, nema aðilar komi sér saman um annað fyrirkomulag. 

Aðilar skulu komast að sameiginlegri niðurstöðu um upphæð launatöfluauka starfsmanna sem taka laun skv. launatöflu kjarasamnings aðila.

Fylgiskjal 3 Launaflokkaröðun

Fylgiskjal 4 Um réttindi þeirra sem voru í starfi 26. águst 2005

Um réttindi þeirra sem voru í starfi 26. ágúst 2005

Ákvæði í fylgiskjali I gildir eingöngu fyrir þá starfsmenn sem voru í starfi hjá Norðurorku hf. fyrir 26. ágúst 2005 og ávinna þeir sér réttindi sem hér um getur. 

Varðandi réttindi og skyldur starfsmanna ráðinna fyrir þann tíma koma eftirfarandi kaflar eða greinar því í stað sömu kafla eða greina í aðalsamningi. Viðauki 1 og viðauki 2 eru hluti af fylgiskjali I.

4                    Um orlof

4.2.2              Lágmarksupphæð orlofsfjár fyrir fullt orlofsár skal nema 12% af maímánaðarlaunum orlofstökuársins í 1. launaflokki 1. þrep

4.3                 Orlofsárið

4.3.1              Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.

4.4                 Sumarorlofstími

4.4.1              Tímabil sumarorlofs er frá 15. maí til 30. september

4.4.2              Starfsmaður á rétt á að fá 192 vinnuskyldustunda orlof sitt á sumarorlofstímabilinu (og allt að fullu orlofi á sama tíma). Eigi starfsmaður lengra orlof skv. gr. 4.1.2. á hann rétt á að fá allt orlof sitt á sumarorlofstímabilinu, verði því við komið vegna starfa stofnunarinnar.

4.4.3              Þeir starfsmenn, sem samkvæmt ósk vinnuveitenda fá ekki fullt orlof á sumarorlofstímabili, skulu fá 33% lengingu á þeim hluta orlofstímans, sem veittur er utan ofangreinds tíma. 

4.5                 Ákvörðun orlofs

4.5.1              Yfirmaður ákveður í samráði við starfsmenn hvenær orlof skuli veitt. Honum er skylt að verða við óskum starfsmanns um hvenær orlof skuli veitt á sumarorlofstíma ef því verður við komið vegna starfa stofnunarinnar. Yfirmaður skal að lokinni könnun á vilja starfsmanna tilkynna svo fljótt sem unnt er og í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs hvenær orlof skuli hefjast nema sérstakar ástæður hamli.

4.6                 Veikindi í orlofi

4.6.1              Veikist starfsmaður í orlofi telst sá tími, sem veikindum nemur ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með læknisvottorði, að hann geti ekki notið orlofs.

4.7                 Frestun orlofs

4.7.1              Nú tekur starfsmaður ekki orlof eitthvert ár og á hann þá rétt á, með samþykki yfirmanns, að leggja saman orlof þess árs og hins næsta til orlofstöku síðara árið.

4.7.2              Nú tekur starfsmaður ekki orlof eða hluta af orlofi skv. beiðni yfirmanns síns og geymist þá orlofið til næsta árs ella ber honum þá yfirvinnukaup fyrir starf sitt þann tíma. Annars er starfsmönnum óheimilt að taka vinnu í stað orlofs í starfsgrein sinni.

4.8                 Áunninn orlofsréttur

4.8.1              Áunninn orlofsréttur látins starfsmanns skal renna til dánarbús hans.

                      Viðbót við 5. kafla

Þeir félagamenn Kjalar stéttarfélags sem kjörnir eru á þing BSRB og til annarra fundasetu á vegum félagsins skulu til þess fá frí á fullum launum enda sé haft samráð við viðkomandi yfirmann.

10                 Fræðslumál

10.1               Starfsþjálfun á vegum Norðurorku hf.

10.1.1            Þeir starfsmenn sem sækja fræðslu  eða þjálfunarnámskeið samkvæmt beiðni Norðurorku hf. skulu halda reglubundnum launum á meðan og fá greiddan kostnað samkvæmt ákvæðum 5. kafla.

10.1.2            Starfsmaður skal eiga rétt á launalausu leyfi, ef honum býðst tækifæri og/eða styrkur til að vinna að tilteknu verkefni, m.a. tengdu starfi hans. Slíkt leyfi skal tekið í samráði við Norðurorku hf.

10.2               Launað námsleyfi

10.2.1            Heimilt er að veita starfsmanni með sérmenntun, sem starfað hefur skv. þessum samningi samfellt í 5 ár hið skemmsta, launað leyfi til þess að stunda viðurkennt framhaldsnám í sérgrein sinni. Með sérmenntun er átt við menntun frá háskóla eða sérskóla, er veitir ákveðin starfsréttindi á verksviði starfsmanns.

Leyfi skv. framan skráðu er ekki veitt til almenns framhaldsnáms, en er miðað við að viðkomandi afli sér viðbótarþekkingar sem nýtist á sérsviði hans í starfi hjá Norðurorku.

Heimilt er að veita launað leyfi til viðurkennds framhaldsnáms til 3ja mánaða hið lengsta á hverjum 5 árum. Í sérstökum tilvikum er heimilt að veita lengra leyfi sjaldnar eða í allt að 6 mánuði á hverjum 10 árum. Einnig er heimilt að veita starfsmönnum, sem ákvæði þetta tekur til, launað námsleyfi tíðar en að framan greinir, en þó skemur hverju sinni og eigi umfram 1 mánuð á hverjum 20 mánuðum, enda leiði ekki af því aukinn kostnað. Laun í námsleyfi miðast við föst laun og meðaltal starfshlutfalls þann tíma sem rétturinn vannst á, hafi starfsmaður eigi verið í fullu starfi allan tímann.

10.2.2            Heimilt er að binda launað námsleyfi skilyrði um áframhaldandi starf hjá stofnuninni að námi loknu.

11                 Ýmis atriði

11.1               Réttindi og skyldur

11.1.1            Um gildissvið

Um starfsmenn Norðurorku hf. gilda neðan skráðar reglur um réttindi og skyldur þeirra, þó þannig að um þá starfsmenn sem ráðnir voru fyrir 1. mars 1997 gilda að auki eftirfarandi ákvæði um áunnin réttindi: 

“Nú er staða lögð niður, og skal þá starfsmaður jafnan fá föst laun, er starfanum fylgdu, greidd í 6 mánuði frá því að hann lét af starfi, ef hann hefur verið í þjónustu ríkisins skemur en 15 ár, en í 12 mánuði, eigi hann að baki lengri þjónustualdur, enda hafi hann þá ekki hafnað annarri sambærilegri stöðu á vegum ríkisins.

Ef sama staða er aftur stofnuð innan 5 ára, á starfsmaður að öðru jöfnu rétt til hennar.

Nú hefur maður verið leystur frá starfi vegna þeirra orsaka, sem um getur í grein þessari, eða annarra atvika, sem honum verður ekki sök á gefin, og skal hann þá í 5 næstu ár að öðru jöfnu sitja fyrir um starf í þjónustu ríkisins, er losna kann, ef hann sækir um það.

Starfsaldur hans áður og eftir skal þá saman lagður og veitir þá sömu réttindi sem óslitin  þjónusta.

Nú tekur maður, er launagreiðslna nýtur samkvæmt 1. mgr., við starfi í þjónustu ríkisins, áður en liðinn er 6 eða 12 mánaða tíminn, og skulu þá launagreiðslur samkvæmt þessari grein falla niður, ef laun þau, er nýja starfinu fylgja, eru jöfn eða hærri en þau, er hann naut í fyrri stöðunni.  Ef launin í nýju stöðunni eru lægri, skal greiða starfsmanni launamismuninn til loka 6 eða 12 mánaða tímabilsins.”

Var 14. gr. réttindi og skyldur lög 38/1954 sjá viðauka við réttindi og skyldur starfmanna Akureyrarbæjar.

11.1.3             Ráðning 

11.1.3.1          Ætíð skal gera skriflegan ráðningarsamning við starfsmann, sbr. Samning aðila um ráðningarsamninga og tilskipun 91/533/EBE.  Sjá viðauka 5

11.1.3.2         Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er þrír mánuðir. Á fyrstu þremur mánuðum, sem er reynslutími er hann þó einn mánuður. Sjá þó grein 11.1.6.

11.1.3.3         Heimilt er að ráða starfsmann tímabundið og er unnt að taka fram í ráðningarsamningi að segja megi slíkum samningi upp af hálfu annars hvors aðila áður en ráðning fellur sjálfkrafa úr gildi við lok samningstíma. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður í slíkum tilfellum. Tímabundin ráðning skal þó aldrei vara samfellt lengur en í tvö ár.

11.1.4            Breytingar á störfum

11.1.4.1         Skylt er starfsmanni að hlíta breytingum á störfum sínum og verksviði frá því hann tók við starfi. Umtalsverðar breytingar ber að tilkynna með sama fyrirvara og ef um uppsögn væri að ræða. Í slíkum tilvikum ber starfsmanni að tilkynna vinnuveitanda innan mánaðar hvort hann uni breytingunum eða muni láta af störfum, eftir þann tíma, sem uppsagnarfrestur kveður á um, frá því að honum var tilkynnt um breytinguna með formlegum hætti. Ef breytingarnar hafa í för með sér skert launakjör eða réttindi skal hann halda óbreyttum launakjörum og réttindum jafn langan tíma og réttur hans til uppsagnarfrests er samkvæmt samningi þessum. 

11.1.5            Ákvörðun vinnutíma - Yfirvinnuskylda

11.1.5.1         Vinnuveitandi ákveður vinnutíma þeirra starfsmanna sem starfa hjá honum að því marki sem lög og kjarasamningar leyfa.

Skylt er starfsmönnum að vinna yfirvinnu sem vinnuveitandi telur nauðsynlega. Þó er engum starfsmanni, nema þeim er gegnir öryggisþjónustu, skylt að vinna meiri yfirvinnu í viku hverri en nemur fimmtungi af lögmætum vikulegum vinnutíma.

Var 31.gr. í lögum nr. 38/1954 

11.1.6            Uppsagnir

11.1.6.1         Ef ástæða er talin til að veita starfsmanni áminningu er skylt að gefa honum fyrst kost á að tjá sig um málið. Óski starfsmaður þess skal það gert í viðurvist trúnaðarmanns.

Ef talið er að fyrir liggi ástæður til uppsagnar sem rekja megi til starfs-mannsins sjálfs, er skylt að áminna starfsmanninn fyrst skriflega og veita honum tíma og tækifæri til að bæta ráð sitt áður en gripið er til uppsagnar. 

Uppsögn skal ávallt vera skrifleg og óski starfsmaður þess skal rökstuðningur einnig vera skriflegur.

Óheimilt er að segja starfsmanni upp án málefnalegra ástæðna.

11.1.7            Starfslok

11.1.7.1         Starfsmaður lætur af starfi sínu næstu mánaðarmót eftir að hann nær 70 ára aldri.

11.1.8            Réttarstaða starfsmanna í fæðingarorlofi

11.1.8.1         Um uppsöfnun og vernd réttinda í fæðingarorlofi fer skv. 14. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, þó með þeirri viðbót sem talin er upp hér á eftir.

11.1.8.2         Starfsmaður sem hefur töku fæðingarorlofs, telst skv. framangreindu vera leystur undan vinnuskyldu á meðan á fæðingarorlofi hans stendur, sbr. 29. gr. framangreindra laga. 

11.1.8.3         Starfsmaður launagreiðanda sem er í fæðingarorlofi nýtur réttinda til greiðslu sumarorlofs, persónu- og orlofsuppbótar. Starfsmaður er áfram í þeim lífeyrissjóði(um) sem hann hefur tilheyrt sem starfsmaður launagreiðanda en launagreiðandi ber ábyrgð á réttindaávinnslu starfsmanns í b-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

11.1.8.4         Starfsmaður sem nýtur fyrirframgreiðslu launa, skal eiga rétt til fyrirframgreiðslu frá launagreiðanda þann mánuð sem hann hefur töku fæðingarorlofs og fellur sá réttur niður þann mánuð sem hann kemur til baka úr fæðingarorlofi.

11.2               Tæknifrjóvgun

11.2.1            Þeim starfsmönnum sem eru fjarverandi vegna tæknifrjóvgunar verði greidd dagvinnulaun og eftir atvikum vaktaálag skv. reglubundinni varðskrá (eins og vegna veikinda barns) í 15 vinnudaga. Aðeins er heimilt að greiða hverjum starfsmanni laun á þessum forsendum einu sinni. Starfsmaður verður að skila vottorði frá viðkomandi lækni sem framkvæmir tæknifrjóvgunina eða þeim lækni sem sendir starfsmanninn í þessa aðgerð, en þá verður það að koma fram á vottorðinu að um slíka ákvörðun sé að ræða.       

11.3.              Fráfall

Við fráfall maka eða barns skal starfsmanni heimiluð allt að tveggja vinnuvikna fjarvist frá vinnu án skerðingar launa. 

SÉRÁKVÆÐI

(Í júní 1998 og maí 2001 hefur kafli um sérákvæði tekið breytingum, feldar hafa verið út greinar og númerum á greinum breytt.)

Sérákvæði, viðauki við kafla 11.1 [í fylgiskjali]

Viðauki við réttindi og skyldur samanber kafla 11.1, þar áður lög nr. 38/1954 samkvæmt bókun I í  kjarasamningi frá 11. apríl 1997.

(þau atriði sem frábrugðin eru, eru undirstrikuð).

  1.   Við ráðningu í stöðu skv. 3. gr. 1. tl. er miðað við 18 ára aldur.
  2.   Þegar staða er lögð niður skv. 14. gr. skal greiða föst laun í 6 mánuði ef starfsmaðurinn hefur minna en 10 ára þjónustualdur.
  3.  Þegar um hópuppsagnir er að ræða skv. 15. gr. getur vinnu-veit-andi áskilið lengri uppsagnarfrest allt að sex mánuðum enda tilkynnist það viðkomandi starfsmönnum innan mánaðar frá því uppsagnir þeirra bárust.
  4. Við andlát starfsmanns skv. 21. gr. skal maka hans, börnum innan 16 ára aldurs eða öðrum er hann hafði á framfæri greidd föst laun starfsmannsins í þrjá mánuði.


 

 

Fylgiskjal 5 Stýrihópur um breytingar á vinnutímatilhögun

Markmið og tilgangur stýrihóps 

Að gera tillögu um vinnutímatilhögun sem starfsfólk Norðurorku kýs um.   

 Forsendur tillögu stýrihópsins  

Í öllum kjarasamningum sem Norðurorka er aðili að var samið um að í upphafi árs 2020 myndi Norðurorka hefja viðræður við starfsfólk um skipulag vinnutíma, neysluhléa og styttingu vinnutíma.  

Í viðræðum yrðu m.a. gerðar tillögur um fyrirkomulag hléa með það að markmiði að ná fram gagnkvæmum ávinningi og bæta nýtingu vinnutíma þar sem því verður við komið.  

 Skýring skv. kjarasamningi: Fyrsta verkefni stýrihóps um vinnutímabreytingar verður að leitast við að samræma vinnutíma í fyrirtækinu með samþættingu fjölskyldu- og atvinnulífs að leiðarljósi. Á grundvelli samræmds vinnutíma verður gerð tillaga að styttingu vinnuvikunnar í 36 klst. 

 Náist ekki samkomulag um breytingar á skipulagi vinnutíma mun virkur vinnutími starfsmanna styttast 1. janúar 2021 í 36 klst. og 15 mín. Virkur vinnutími á dag verður 7 klst. og 15 mín. nema samkomulag verði um annað.  

 Stýrihópinn skipa: 

Arnaldur B. Magnússon, Erla Björg Guðmundsdóttir, Gunnar Berg Haraldsson, Halldór Gauti Kárason, Helgi Jóhannesson, Kristín Kjartansdóttir, Páll Eyþór Jóhannsson og Pétur Freyr Jónsson. 

 Tillaga  

Fjöldi vinnustunda og fyrirkomulag 

  • Tillagan gengur út á styttingu í 35 stundir og 35 mínútur (virkur vinnutími).  
  • Styttingin verði tekin út vikulega á hverjum föstudegi.  
  • Vinnutími starfsfólks verði samræmdur.  
  • Vinnutími á mánudegi til fimmtudags er 8:00 - 16:00 (virkur vinnutími 7 klst og 15 mín). 
  • Vinnutími á föstudögum er 8:00 - 15:20 (virkur vinnutími 6 klst og 35 mín). 

 Kaffitímar 

Lagt er til að breyta fyrirkomulagi kaffitíma á þann veg að hætt verður að hafa fastan kaffitíma á ákveðnum tíma. Í staðinn verður kaffitími „fljótandi“ sem þýðir að hann er tekin á hverjum þeim tíma sem hentar miðað við verkefnastöðu.  

Ábyrgð og ákvörðun um hvenær kaffitími er tekinn liggur hjá flokksstjóra/verkstjóra sem metur það í takt við stöðu verkefna. Þannig munu verkefnin og staða þeirra stýra kaffitíma, í stað fastrar tímasetningar.   

Kaffitímarnir verða á „Kaffitorginu“, eru 15 mínútur að lengd og teknir fyrir hádegi. 

 Gildistími 

Miðað er við að verði tillagan samþykkt taki hún gildi ekki seinna en 1. september 2020. 

 Frekari upplýsingar / spurt og svarað  

  •  Hvað er virkur vinnutími? 

Virkur vinnutími er vinnudagur starfsfólks að frádregnum matar- og kaffitímum. 

  •  Hvað ef ég er veikur á föstudegi, missi ég þá af styttingunni? 

Þú færð styttinguna samt vegna þess að þú skráir færri tíma á veikindi. Tökum dæmi: Aðfangadagur er almennur frídagur frá hádegi. Sá sem er veikur þann dag nýtir bara 4 tíma af veikindarétti sínum en á ekki inni 4 tíma í frí þegar hann mætir næst til vinnu. 

  •  Mun ég lækka í launum? 

Breytingin hefur engin áhrif á mánaðarlaun, hins vegar hækkar tímakaup dagvinnu vegna þess að unnar eru færri vinnustundir í hverjum mánuði. Yfirvinna verður óbreytt hlutfall af mánaðarlaunum. 

  •  Hvaða áhrif hefur breytingin á orlof? 

Breytingin hefur engin áhrif á fjölda orlofsdaga. 

  • Hvaða áhrif hefur breytingin á bakvaktir og yfirvinnu? 

Eina breytingin er að á föstudögum hefjast bakvaktir og yfirvinna fyrr sem vinnutímastyttingu nemur. 

  •  Af hverju að breyta vinnutímanum? 

Til að stuðla að samræmdum vinnutíma alls starfsfólks og til að mæta óskum um fjölskylduvænni vinnutíma fyrir allan vinnustaðinn. 

  •  Verður þá enginn sveigjanleiki í vinnutíma í boði? 

Jú, almenna reglan verður 8:00-16:00 en ákvarðanir um frávik frá þeirri reglu verða eftir sem áður í höndum stjórnenda. 

  •  Hvað gerist ef starfsfólk fellir tillöguna í kosningunni? 

Þá mun vinnutími starfsfólks styttast 1. Janúar 2021 í 36 klst. og 15 mín (virkur vinnutími). Vinnuveitanda er heimilt að tilkynna starfsfólki um útfærslu vinnutímastyttingar með eins mánaðar fyrirvara.