Norðurorka hf
4. Um orlof
Lengd orlofs
4.1.1
Lágmarksorlof skal vera 24 dagar miðað við fullt ársstarf og orlofslaun 10,17%. Starfsmaður sem hefur unnið hluta af fullu starfi eða hluta úr ári skal fá orlof sem nemur 14,4 vinnuskyldustundum fyrir fullt mánaðarstarf.
4.1.2 Orlofsauki
4.1.2.1
Eftir 5 ár í sömu starfsgrein skal starfsmaður hafa 25 daga orlof og skulu orlofslaun vera 10,64%. Eftir 5 ár hjá Norðurorku hf. skal starfsmaður hafa 27 daga orlof og skulu orlofslaun vera 11,59%. Eftir 10 ár hjá Norðurorku hf. skal starfsmaður hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04%.
4.1.2.2
Áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjast eftir þriggja ára starf hjá Norðurorku hf. enda hafi hann verið sannreyndur.
4.1.2.3
Námstími iðnnema telst ekki til vinnu í starfsgrein eða til vinnu innan sama fyrirtækis.
4.1.2.4
Veita ber orlof a.m.k. fjórar vikur, 20 virka daga, á tímabilinu 15. maí til 30. september. Orlof umfram það má veita utan þessa tímabils og ákvarðast með minnst eins mánaðar fyrirvara.
Þeir sem samkvæmt ósk atvinnurekanda fá ekki 20 orlofsdaga á sumarorlofstímabili eiga rétt á 25% álagi á það sem vantar á 20 dagana.
Ákvörðun orlofs
4.2.1
Yfirmaður ákveður í samráði við starfsmenn hvenær orlof skuli veitt. Honum er skylt að verða við óskum starfsmanns um hvenær orlof skuli veitt á sumarorlofstíma ef því verður við komið vegna starfa fyrirtækisins. Yfirmaður skal að lokinni könnun á vilja starfsmanna tilkynna svo fljótt sem unnt er og í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs, hvenær orlof skuli hefjast, nema sérstakar ástæður hamli.
Veikindi orlofs
4.3.1
Veikist starfsmaður í orlofi telst sá tími, sem veikindum nemur ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með læknisvottorði, að hann geti ekki notið orlofs.
4.3.2
Veikist starfsmaður í orlofi telst sá tími, sem veikindum nemur ekki til orlofs, enda tilkynni hann veikindin svo fljótt sem auðið er og sanni með læknisvottorði, að hann geti ekki notið orlofs.
Frestun orlofs
4.4.1
Tímabil sumarorlofs er frá 15. maí til 30. september.
4.4.2
Starfsmaður á rétt á að fá 216 vinnuskyldustunda orlof sitt á sumarorlofstímabilinu. Eigi starfsmaður lengra orlof skv. 4.1.2. á hann rétt á að fá allt orlof sitt á sumarorlofstímabilinu, verði því við komið vegna starfa fyrirtækisins.