Norðurorka hf
Launaseðill, félagsgjöld og iðgjaldagreiðslur
Launaseðill
13.1.1
Við greiðslu launa til starfsmanns á hann rétt á að fá launaseðil merktan nafni sínu. Á launaseðli skulu tilgreind föst laun starfsmanns það tímabil sem greiðslan tekur til grunnlaunaflokkur ef aðstæður leyfa, fjöldi yfirvinnustunda, uppsafnaður frítökuréttur og sundurliðun einstakra tekna og frádráttarliða, sem leiða til útgreiddra launafjárhæða
Félagsgjöld
13.1.2
Norðurorka hf. tekur að sé að halda eftir af launum hvers starfsmanns félagsgjaldi hans og skila því mánaðarlega ásamt skilagrein. Gjalddagi iðgjalda hvers mánaðar er 10. næsta mánaðar.
Orlofssjóður
13.3.1
Launagreiðandi greiðir 0,5 % af öllum launum félaga Kjalar stéttarfélags í orlofssjóð félagsins.
13.4 Starfsmenntunarsjóður
13.4.1
Norðurorka hf. greiðir alls 0,6% af heildarlaunum félagsmanna í Fræðslusjóð Kjalar stéttarfélags (0,3%) og Mannauðssjóð Kjalar (0,3%).
Norðurorka getur sótt um styrki í Mannauðssjóðinn vegna námskeiða eða endurmenntunar sem það stendur fyrir eða býður upp á fyrir hópa starfsfólks hjá Norðurorku. Styrkurinn tekur mið af fjölda félagsmanna Kjalar sem sækir námskeið eða geta notið þess.
Lífeyrssjóður
13.5.1 Aðild að lífeyrissjóði
Starfsmenn sem heyra undir samning þennan skulu eiga aðild að Brú lífeyrissjóði sveitarfélaga eftir því sem lög og samþykktir sjóðsins segja til um. Við upphaf ráðningar eiga starfsmenn val um það hvort iðgjald þeirra fari til A eða V-deildar sjóðsins.
13.5.2 Lífeyrissjóðsiðgjöld
Starfsmaður greiðir 4% af launum í Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda eða annan sambærilegan sjóð, en Norðurorka hf. greiðir mótframlag 11,5%
Njóti starfmaður hærra mótframlags í lífeyrissjóð verður ekki breyting á því en um ráðstöfun iðgjalds fer að öðru leyti skv. samningi SA og ASÍ. (viðbót úr samkomulagi 2016 )
Nýti starfsmaður lögbundinn rétt sinn til lífeyrissparnaðar, greiðir vinnuveitandi mótframlag til jafns á móti séreignarlífeyrissparnaði starfsmanns, allt að 2%.
Samskiptanefnd
13.6.1
Samningsaðilar setja á stofn samstarfsnefnd á milli Norðurorku hf. og Einingar-Iðju sem skipuð er tveimur fulltrúum frá hvorum aðila. Samstarfs-nefndin verður formlegur vettvangur samskipta samningsaðila á samnings-tímanum og hefur það hlutverk að fjalla um framkvæmd og túlkun kjarasamningsins og lausn ágreiningsefna.
Starfsendurhæfingasjóður
13.7.1
Iðgjald launagreiðanda í Starfsendurhæfingarsjóð skal nema 0,13% af heildarlaunum félagsmanna.
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður |
Styrktarsjóður Klettur
13.8.1
Iðgjald launagreiðanda skal nema 0,75% af heildarlaunum þeirra starfsmanna hlutaðeigandi launagreiðanda sem falla undir samkomulag þetta. Iðgjaldið skal greitt mánaðarlega eftirá skv. útreikningi launagreiðanda.