Norðurorka hf
1. Um kaup
1.1 Föst Mánaðarlaun
1.1.1
Laun og launatöflur taka hlutfallshækkun, með krónutöluhækkun að lágmarki. Með mánaðarlaunum er átt við föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu. Laun og launatöflur hækka sem hér segir:
- 1. febrúar 2024: 3,25% eða kr. 23.750
- 1. janúar 2025: 3,50% eða kr. 23.750
- 1. janúar 2026: 3,50% eða kr. 23.750
- 1. janúar 2027: 3,50% eða kr. 23.750
Kjaratengdir liðir hækka sem hér segir, nema um annað hafi verið samið:
- 1. febrúar 2024: 3,25%
- 1. janúar 2025: 3,50%
- 1. janúar 2026: 3,50%
- 1. janúar 2027: 3,50%
1.1.1.1
Útborgun launa skal fara fram mánaðarlega fyrsta dag eftir að mánuði þeim lýkur sem laun eru greidd fyrir. Beri þann dag upp á frídag skal borga út síðasta virka dag mánaðarins.
1.1.2
Brot úr mánaðarlaunum reiknast þannig, að deilt er með 21,67 í mánaðarlaunin og margfaldað með fjölda almanaksdaga annarra en laugardaga og sunnudaga frá upphafi eða til loka starfstíma.
Starfsaldur og launaþrep
1.2.1
Hver launaflokkur skiptist í 4 launaþrep, sem eru miðuð við starfsaldur hjá Norðurorku hf. Heimilt er að meta starfsaldur í sambærilegum störfum hjá öðrum vinnuveitanda til launa hjá Norðurorku hf.
1. þrep byrjunarlaun
2. þrep frá 1. árs starfsaldri
3. þrep frá 3 ára starfsaldri
4. þrep frá 10 ára starfsaldri
Röðun í launaflokka
1.3.1
Tímavinnukaup í dagvinnu er 0,615% af mánaðarkaupi í þeim launaflokki og því launaþrepi sem viðkomandi starfsmaður er í.
1.3.2
Próf sem lögum samkvæmt veita starfsmönnum sömu starfsréttindi eru jafngild án tillits til þess á hvaða tíma þau hafa verið tekin.
Sjá fylgiskjal 3
Tímavinnu- og unglingakaup
1.4.1
Yfirvinna er greidd með tímakaupi. Tímakaup fyrir yfirvinnu í hverjum launaflokki er 1,0385% af mánaðarlaunum miðað við það launaþrep, er viðkomandi starfsmaður tekur laun eftir.
1.4.2
Þeir sem á almanaksárinu verða 15 ára, skulu fá 67% af 1. þrepi 1. launafl. skv. samningi þessum.
1.4.3
Þeir sem á almanaksárinu verða 16 ára og eldri, skulu fá þau laun sem starfinu fylgja.
Yfirvinnukaup
1.5.1
Yfirvinna er greidd með tímakaupi. Tímakaup fyrir yfirvinnu í hverjum launaflokki er 1,0385% af mánaðarlaunum miðað við það launaþrep, er viðkomandi starfsmaður tekur laun eftir.
1.5.2
Öll vinna sem unnin er á stórhátíðardögum (sbr. 2.2.3.), greiðist með tímakaupi, sem nemur 2,077% af mánaðarlaunum miðað við það launaþrep, er starfsmaður tekur laun eftir.
1.5.3
Sé yfirvinna fjarri föstum vinnustað ekki greidd skv. tímareikningi, skal semja um þá greiðslu fyrirfram við viðkomandi starfsmann.
1.5.4
Vinnutími starfsmanna skal vera samfelldur eftir því sem við verður komið vegna eðlis starfsins. Séu eyður í daglegum vinnutíma starfsmanns skv. ósk yfirmanns, skal fyrir slíkar eyður greiða 1. klst. í yfirvinnu.
1.6 Álagsgreiðslur
1.6.1
Vaktaálag er greitt til þeirra starfsmanna sem vinna vaktavinnu, bakvaktir og aðra vinnu sem fellur utan dagvinnutímabils en er hluti vikulegrar vinnuskyldu (sbr. gr. 2.2.3.). Vaktaálag er greitt vegna afbrigðilegs og óþægilegs vinnutíma.
1.6.2
Greiðsla fyrir bakvaktir skal reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1 með eftirtöldum hætti:
33,33% kl. 17:00 - 24:00 mánudaga - fimmtudaga
45,00% kl. 17:00 - 24:00 föstudaga
45,00% kl. 00:00 - 08:00 mánudaga
33,33% kl. 00:00 - 08:00 þriðjudaga - föstudaga
45,00% kl. 00:00 - 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga
120,00% kl. 00:00 - 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 16:00 - 24:00 á aðfangadag og gamlársdag sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 00:00 - 08:00 á jóladag og nýársdag sbr. gr. 2.1.4.3
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega. Um greiðslur fyrir útköll á bakvakt gildir gr.2.3.3.
| Grein 1.6.2 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir frá 1. nóvember 2024. |
1.6.3
Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1.Vaktaálag skal vera:
33,33% kl. 17:00 – 24:00 mánudaga - fimmtudaga
55,00% kl. 17:00 – 24:00 föstudaga
65,00% kl. 00:00 – 08:00 þriðjudaga - föstudaga
55,00% kl. 08:00 – 24:00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídag
75,00% kl. 00:00 – 08:00 laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka frídaga
120,00% kl. 00:00 – 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 16:00 – 24:00 á aðfangadag og gamlársdag sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 00:00 - 08:00 á jóladag og nýársdag sbr. gr. 2.1.4.3
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.
| Gildir frá 1. nóvember 2024. Gildir fyrir vaktavinnufólk frá 1. apríl 2023 |
1.6.4
Greiðsla fyrir bakvakt á dagvinnutímabili er 33,33% vaktaálag.
Desemberuppbót
1.7.1
Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. maí og 1. desember ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.Hafi starfsmaður gengt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Tímavinnumaður fær fulla persónuuppbót ef hann vinnur 1504 virkar vinnustundir. Greitt skal hlutfallslega miðað við unna tíma og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.
Hafi starfsmaður látið af störfum á árinu vegna aldurs skal hann fá greidda persónuuppbót hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Sama hlutfallsregla gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs sbr. 8. gr. laga nr. 144/2020. Sjá einnig gr. 11.1.8.
Persónuuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofslaun.
Áunnin persónuuppbót skal gerð upp við starfslok starfsmanns.
Persónuuppbót miðað við 100% starfshlutfall á samningstímanum verður sem hér segir:
| 1. maí 2024 | kr. 57.500 |
| 1. desember 2024 | kr. 135.500 |
| 1. maí 2025 | kr. 59.500 |
| 1. desember 2025 | kr. 140.000 |
| 1. maí 2026 | kr. 62.000 |
| 1. desember 2026 | kr. 145.000 |
| 1. maí 2027 | kr. 64.000 |
| 1. desember 2027 | kr. 150.000 |
1.7.2
Starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fái greidda persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs.
1.7.3
Persónuuppbót skv. 1.6.1. greiðist starfsmönnum sem fóru á eftirlaun á árinu. enda hafi þeir skilað starfi er svari til a.m.k. hálfs starfsárs það ár. Sama regla gildir um þá, sem sökum heilsubrests minnka við sig starf, enda liggi fyrir um það vottorð trúnaðarlæknis Orkubúsins.
Sérstök orlofsuppbót
1.8.1
Hinn 1. júní skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl fá greidda sérstaka orlofsuppbót er nemi 50% af launaflokk 135.1. þrep, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Ráðningasamningur og ráðningarbréf
1.9.1
Á móti 4% framlagi starfsmanns af öllum launum í almenna lífeyrissjóði greiðir Orkubúið 11,5%
1.9.2
Leggi starfsmaður a.m.k. 2% viðbótarframlag í séreignarsjóð skal mótframlag OV vera 2%.
1.9.3
Ákvæði gr. 1.9.1. og 1.9.2. gilda ekki við ráðningu í tilfallandi störf, að því tilskildu að hlutlægar ástæður liggi því til grundvallar.
1.9.4
Upplýsingaskylda vinnuveitanda - Í ráðningarsamningi eða skriflegri staðfestingu ráðningar, þ.e. ráðningarbréfi, skal a.m.k. eftirfarandi koma fram:
- Deili á aðilum þ.m.t. kennitölur.
- Vinnustaður og heimilisfang vinnuveitanda. Sé ekki um fastan vinnustað að ræða, eða stað þar sem vinnan fer jafnaðarlega fram, skal koma fram að starfsmaður sé ráðinn á mismunandi vinnustöðum.
- Titill, staða, eðli eða tegund starfs sem starfsmaður er ráðinn í eða stutt útlistun eða lýsing á starfinu.
- Fyrsti starfsdagur.
- Lengd ráðningar sé hún tímabundin.
- Orlofsréttur.
- Uppsagnarfrestur af hálfu vinnuveitanda og starfsmanns.
- Mánaðar- eða vikulaun, t.d. með tilvísun til launataxta, aðrar greiðslur eða hlunnindi svo og greiðslutímabil.
- Lengd venjulegs vinnudags eða vinnuviku.
- Lífeyrissjóður.
- Tilvísun til gildandi kjarasamnings og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Upplýsingar samkvæmt 6. - 9. tl. má gefa með tilvísun til kjarasamninga.
1.9.5
Störf erlendis - Sé starfsmanni falið að starfa í öðru landi í einn mánuð eða lengur skal hann fá skriflega staðfestingu ráðningar fyrir brottför. Auk upplýsinga skv. gr. 1.9.4. skal eftirfarandi koma fram:
- Áætlaður starfstími erlendis.
- Í hvaða gjaldmiðli laun eru greidd.
- Uppbætur eða hlunnindi sem tengjast starfi erlendis.
- Eftir atvikum skilyrði þess að starfsmaður geti snúið aftur til heimalandsins.
Upplýsingar skv. 2. og 3. tl. má gefa með tilvísun til laga eða kjarasamninga.
1.9.6 Tímabundnar ráðningar
Um tímabundnar ráðningar fer skv. lögum nr. 139/2003 um tímabundna ráðningu starfsmanna.