Kirkjugarðar Akureyrar og Útfaraþjónusta Akureyrar
Inngangur

Kjarasamningar aðila framlengjast frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 með þeim breytingum sem í samkomulagi þessu felast og fellur þá úr gildi án frekari fyrirvara.
Kjarasamningur þessi byggir á samkomulagi sem Kjölur hefur gert við stjórnir Kirkjugarða Akureyrar og Útfaraþjónustu Akureyrar. Samkomulagið felur í sér að fylgja hverju sinni heildarkjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags.
Þeir starfsmenn sem heyra undir kjarasamning þennan hafa réttindi og skyldur samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Þar er m.a. fjallað um sérstöðu opinberra starfsmanna, samningsrétt stéttarfélagsins og verkfallsrétt.
Með þessum kjarasamningi eru ákvæði um betri vinnutíma færð inn í kjarasamninginn skv. fylgiskjölum 2 og 3 með áorðnum breytingum og falla þar með bæði fylgiskjölin úr gildi.
