Varða rannsóknarsetur og Kjaratölfræðinefnd
Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins var stofnuð í maí 2020 af Alþýðusambandi Íslands og BSRB.
Grundvöllurinn af stofnun sérstakrar rannsóknastofnunar á sviði vinnumarkaðar endurspeglast í sameiginlegum markmiðum ASÍ og BSRB um að skapa víðtæka þekkingu á lífsskilyrðum fólks, byggja brú á milli fræðasamfélagsins og verkalýðshreyfingarinnar sem og að hvetja til sjálfstæðra rannsókna sem hafa þýðingu fyrir launafólk.
Kjaratölfræðinefnd - Nefndin hóf störf í desember 2019 og eru fulltrúar í henni frá forsætisráðuneyti, félags-og vinnumálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins og Hagstofu Íslands.
