Fara í efni

Kjarasamningur við SÍS

Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir.

Sérákvæði

Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum

Eftirfarandi eru sérákvæði viðkomandi stéttarfélags við kjarasamning Launanefndar sveitarfélaga og Samflots frá 29. maí 2005. 

Lengd orlofs – viðbót við grein 4.1 í kjarasamningi LN og Samflots

1. Við 50 ára aldur eða við 15 ára starfsaldur fær starfsmaður enn að auki orlof sem svarar 24 vinnuskyldustundum í dagvinnu.

Grein þessi gildir eingöngu gagnvart þeim starfsmönnum sem ráðnir voru fyrir 29. maí 2005 og voru þá að störfum.

Sérákvæðum svo breytt 29. maí 2011.

Fjallabyggð

1. grein
Bæjarstjórn Fjallabyggðar viðurkennir Starfsmannafélag Fjallabyggðar, St. Fjall, sem samningsaðila skv. lögum nr. 94/1986. Félagið fer með forsvar fyrir alla félagsmenn sína, sem eru starfsmenn Fjallabyggðar og stofnana í eigu hans og gegna störfum á samningssvæði félagsins, enda verði starf þeirra talið aðalstarf. Óheimilt er að gera samninga sem fela í sér skerðingu lögbundinna eða umsaminna réttinda. 

2. grein
Starfsfólk á Leikhólum fái greitt fyrir að sitja starfsmannafundi einu sinni í mánuði utan venjulegs vinnutíma með þeim taxta sem gildir fyrir almenna nefndarfundi hjá bænum.

3. grein
Vinnuveitendur lýsa vilja sínum til að taka þátt í kostnaði við árshátíð starfsmanna innan skynsamlegra marka.

4. grein
Undirbúningstími í leikskólum
Leiðbeinendur skulu hafa 2 tíma á viku til undirbúnings- og skipulagsstarfa. 

Siglufjarðardeild

4. grein 
Hafnarvarsla á Siglufirði:
Vegna vinnu- og viðveruskyldu utan dagslegs vinnutíma komi 40% greiðsla á föst laun.   Vegna notkunar eigin bifreiðar skal hafnarvörður fá greitt kílómetragjald fyrir 100 km. akstur á mánuði.

Lóðsun skipa:
Sé þess óskað að starfsmaður hafnar lóðsi skip skal greiðsla til starfsmannsins miðast við eftirfarandi:

Mælieining skips, margfölduð með bryggjugjaldseiningaverði í gjaldskrá hafna, annars vegar við komu og hins vegar við brottför.
Fastagjald 7,5% af launaflokki/þrepi hafnarvarða, annars vegar við komu og hinsvegar við brottför.  

Þurfi lóðsunar við,rétt út fyrir línu sem dregin er milli Siglunestá austan fjarðarins og Djúpavogs að vestanverðu, greiðist upphæð sem samsvarar 5% af launaflokki/þrepi hafnarvarða.

5. grein 
Gildir fyrir þá sem ráðnir voru fyrir 11. mars 2001 og starfað hafa samfellt síðan:
Lágmarksorlof var 208 vinnuskyldustundir miðað við fullt ársstarf, eftir 6 ára starf 240 vinnuskyldustundir og eftir 12 ára starf 272 vinnuskyldustundir. Orlofsfé var 11,11%, eftir 6 ára starf 13,04% og eftir 12 ára starf 15,04%.

FOS Hún. deild

6. grein
Gildir fyrir þá sem ráðnir voru fyrir 30. apríl 1997 og starfað hafa samfellt síðan:
Lágmarksorlof var 192 vinnuskyldustundir miðað við fullt ársstarf, eftir 8 ára  starf eða við 40 ára aldur 216 vinnuskyldustundir, eftir 12 ára starf eða við 45 ára aldur 240 vinnuskyldustundir og eftir 15 ára starf eða við 50 ára aldur 264 vinnuskyldustundir. Orlofsfé var 10,17%, eftir 8 ára starf eða við 40 ára aldur 11,59% og eftir 12 ára starf eða við 50 ára aldur 13,04%.

STAK deild

1. grein
Sjúkraliðar sem starfa hjá stofnunum Akureyrarbæjar:

Sjúkraliði (flakkari) fær fjóra launaflokka f. næturvaktir. Í undanteknar tilvikum má greiða 4.l.fl. til sjúkraliða sem sinnir sérhæfðum verkefnum og hefur umsjón með ummönnun á sjúkra- eða dvalardeild og stýrir verkum annarra sjúkraliða og starfsmanna á öllum vöktum.  Standi sjúkraliði eina hópstjóravakt á mánuði heldur hann þeim launum þann mánuð. 

Sjúkraliði sem lokið hafa framhaldnámi fær 2 persónustig. 

2. grein
Viðauki við réttindi og skyldur samanber kafla 11.1, þar áður lög nr. 38/1954 samkvæmt bókun I í  kjarasamningi frá 11. apríl 1997.

  1. Við ráðningu í stöðu skv. 3. gr. 1. t.l. er miðað við 18 ára aldur.

  2. Þegar staða er lögð niður skv. 14. gr. skal greiða föst laun í 6 mánuði ef starfsmaðurinn hefur minna en 10 ára þjónustu­aldur.

  3. Þegar um hópuppsagnir er að ræða skv. 15. gr. getur vinnuveitandi áskilið lengri uppsagnarfrest allt að sex mánuðum enda tilkynnist það viðkomandi starfsmönnum innan mánaðar frá því uppsagnir þeirra bárust.

  4. Við andlát starfsmanns skv. 21. gr. skal maka hans, börnum innan 16 ára aldurs eða öðrum er hann hafði á framfæri greidd föst laun starfsmannsins í þrjá mánuði.

3.grein
Bílstjórar hjá SVA skulu fá hreinsun á stökkum eða jökkum 4 sinnum á ári.

Eftirfarandi eru sérákvæði KJALAR við kjarasamning Launanefndar sveitarfélaga og KJALAR FRÁ 29. maí 2005.