Fara í efni

Kjarasamningur við SÍS

Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir.

Eldri bókanir

Bókun 1 [2023] - Samræming kjarasamninga

Vegna sameiningar Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu, Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsmannafélags Fjarðabyggðar og Starfsmannafélags Fjallabyggðar við Kjöl - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu eru samningsaðilar sammála um að kjarasamningarnir gilda með þeim breytingum sem samkomulag þetta felur í sér.  Á samningstímanum verður unnið að samræmingu kjarasamninganna.

Bókun 6 [2020] - Símenntun starfsfólks sundlauga

Starf sundlaugarvarðar felst m.a. í sundlaugargæslu samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Samkvæmt reglugerðinni ber eigendum  sund- og baðstaða að sjá til þess að starfsfólk fái reglulega starfsþjálfun.

Aðilar eru sammála um að forstöðumaður sundlaugar beri að skapa sundlaugarvörðum svigrúm til sundþjálfunar, verklegra æfinga vegna björgunar í laug og æfingum vegna neyðaráætlunar.  Útfærsla símenntunar á vinnustaðnum skal vera hluti af starfsþróunaráætlun hans og unnin í samstarfi vinnuveitenda og starfsfólks.

Bókun 3 [2015] - Um launaupplýsingar

Samningsaðilar eru sammála um að á gildistíma kjarasamnings verði samkomulag um skil á launaupplýsingum endurskoðað.

Bókun 3 [2014] - Um jafnræði í launum óháð stéttarfélagsaðild

Aðilar eru sammála um að beina þeim tilmælum til sveitarfélaga að jafnræðis verði gætt í launum þeirra starfsmanna sem vinna sömu og/eða sambærileg störf innan sveitarfélags, óháð stéttarfélagsaðild.