Fara í efni

Kjarasamningur við SÍS

Gildistími: Frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Kjarasamningurinn er kaflaskiptur á síðunni sem auðveldar þér að finna efnið sem þú leitar eftir.

Inngangur

/cdn/documents/Logo-allskonar-taknmerki-og-myndir/ZvLIeLVsGrYSv1jh_Merki_SIS_Blatt.avif?v=1788087264

Kjarasamningar aðila framlengjast frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 með þeim breytingum sem í samkomulagi þessu felast og fellur þá úr gildi án frekari fyrirvara. 

Kjarasamningur þessi byggir á heildarkjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga f.h. þeirra sveitarfélaga og annarra aðila sem það hefur samningsumboð fyrir og bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB sem unnin var sameiginlega af aðilum og hefur gildistíma frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.

Bæjarstarfsmannafélögin eru Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónusta, Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu; Sameyki, stéttarfélag í almannaþjónustu, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Suðurnesja og Starfsmannafélag Vestmannaeyja.

Þeir starfsmenn sem heyra undir kjarasamning þennan hafa réttindi og skyldur samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Þar er m.a. fjallað um sérstöðu opinberra starfsmanna, samningsrétt stéttarfélagsins og verkfallsrétt. 

Með þessum kjarasamningi eru ákvæði um betri vinnutíma færð inn í kjarasamninginn skv. fylgiskjölum 2 og 3 með áorðnum breytingum og falla þar með bæði fylgiskjölin úr gildi.