Kirkjugarðar Akureyrar og Útfaraþjónusta Akureyrar
Eldri bókanir
Bókun 1 [2023] - Samræming kjarasamninga
Vegna sameiningar Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu, Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsmannafélags Fjarðabyggðar og Starfsmannafélags Fjallabyggðar við Kjöl - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu eru samningsaðilar sammála um að kjarasamningarnir gilda með þeim breytingum sem samkomulag þetta felur í sér. Á samningstímanum verður unnið að samræmingu kjarasamninganna.
Bókun 6 [2020] - Símenntun starfsfólks sundlauga
Starf sundlaugarvarðar felst m.a. í sundlaugargæslu samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Samkvæmt reglugerðinni ber eigendum sund- og baðstaða að sjá til þess að starfsfólk fái reglulega starfsþjálfun.
Aðilar eru sammála um að forstöðumaður sundlaugar beri að skapa sundlaugarvörðum svigrúm til sundþjálfunar, verklegra æfinga vegna björgunar í laug og æfingum vegna neyðaráætlunar. Útfærsla símenntunar á vinnustaðnum skal vera hluti af starfsþróunaráætlun hans og unnin í samstarfi vinnuveitenda og starfsfólks.
Bókun 3 [2015] - Um launaupplýsingar
Samningsaðilar eru sammála um að á gildistíma kjarasamnings verði samkomulag um skil á launaupplýsingum endurskoðað.
Bókun 3 [2014] - Um jafnræði í launum óháð stéttarfélagsaðild
Aðilar eru sammála um að beina þeim tilmælum til sveitarfélaga að jafnræðis verði gætt í launum þeirra starfsmanna sem vinna sömu og/eða sambærileg störf innan sveitarfélags, óháð stéttarfélagsaðild.