Fara í efni

Markmiðið með nýja vefnum er að gera upplýsingar aðgengilegri og auðvelda félagsfólki að finna það sem það leitar að, hvort sem um er að ræða kjaramál, styrki, orlofseignir, trúnaðarmenn eða aðra þjónustu félagsins.

Ein helsta breytingin er að öll kjaramál hafa nú verið færð undir viðkomandi kjarasamning. Þar má á einum stað finna kjarasamninginn, launatöflur og aðrar upplýsingar sem tengjast honum. Von okkar er að með þessu verði mun einfaldara að finna þær upplýsingar sem eiga við hverju sinni.

Við hvetjum ykkur til að skoða nýja vefinn og kynna ykkur það sem þar er að finna.

Vefurinn er nýr og því kunnum við vel að meta ábendingar ef eitthvað má betur fara eða upplýsingar vantar.

Við bjóðum ykkur velkomin á nýja og endurbætta heimasíðu Kjalar!