Fara í efni

Stjórn og starfsfólk Kjalar stéttarfélags mættu á landsfund bæjarstarfsmannafélaga BSRB sem haldinn var í Vestmannaeyjum dagana 16. - 18. september sl. 

Á fundinum var farið yfir ýmis sameiginleg málefni félaganna. Meðal annars var fjallað um stöðu kjaramála, undirbúning og næstu skref í kjaraviðræðum ásamt mikilvægi þess að samstaða sé í réttindabaráttunni. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Jana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur BSRB, fóru yfir stöðu kjaramála og næstu verkefni fram undan.

Fjallað var um mikilvægi virkrar stjórnar og þátttöku í starfi stéttarfélaga undir yfirskriftinni „Virk stjórn er sterkt félag – frá fundarsetu til framkvæmda“. Þá var unnið í hópum og rætt um ýmis málefni sem snúa að starfsemi félaganna og hvernig hægt er að efla hana enn frekar.

Landsfundurinn er gott tækifæri til að hittast, deila reynslu og ræða sameiginleg verkefni. Það er mikilvægt að bæjarstarfsmannafélögin innan BSRB standi saman og stilli saman strengi sína þegar kemur að kjarasamningsgerð og öðrum málum sem varða hagsmuni félagsfólks.

Landsfundur sem þessi er góður vettvangur til að efla samstarf félaganna og undirbúa þau verkefni sem fram undan eru.