Fara í efni

Vegna truflana í kerfum Microsoft liggur tölvupóstþjónusta Kjalar stéttarfélags niðri sem stendur. Af þeim sökum getum við ekki svarað tölvupóstum sem berast félaginu.Við vonum að þetta komist í lag sem fyrst. Á meðan er hægt að hafa samband við okkur í síma 525 8383 milli kl. 10:00 og 13:00.

Á vef RÚV kemur fram að umfangsmiklar truflanir hafi orðið í kerfum Microsoft og haft áhrif á milljónir notenda í yfir 70 löndum. Truflanirnar hafa meðal annars náð til Outlook, Teams og Copilot.Microsoft telur að rekja megi vandann til aukins álags á kerfin en ekki tölvuárásar. Tekist hefur að koma Teams aftur í lag en enn er unnið að því að leysa vandamál í Outlook.

Mynd tekin af vef ruv.is

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.