Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf sérfræðings á sviði kjaramála. Um er að ræða lykilstarf þar sem unnið er að því að tryggja réttindi launafólks og fylgja eftir kjarasamningum félagsins.
Starfið tilheyrir kjarasviði og felur jafnframt í sér fjölbreytta þjónustu við félagsmenn. Starfsstöð er á skrifstofu Kjalar á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf í kjaramálum, útreikningar og úrvinnsla ágreiningsmála
- Þjónusta og ráðgjöf til félagsmanna um réttindi og skyldur á vinnumarkaði
- Greining og túlkun kjarasamninga og vinnumarkaðslöggjafar
- Skýrslugerð og miðlun upplýsinga
- Önnur fjölbreytt verkefni á starfssviði stéttarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í lögfræði, hagfræði eða viðskiptafræði
- Þekking og reynsla af íslenskum vinnumarkaði, kjarasamningum og vinnurétti
- Góð greiningarhæfni og færni í úrvinnslu gagna og framsetningu þeirra
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og hæfni til að vinna í teymi
- Sjálfstæði í starfi, nákvæm og öguð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta; önnur tungumálakunnátta er kostur
- Þekking og reynsla af DK er kostur
- Gerð er krafa um vammleysi, gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist eðli og ábyrgð starfssins
Umsókn skal fylgja
- Greinagott yriflit yfir náms- og starfsferil
- Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur starfsins og hvað hann telur sig geta lagt a mörkum til félagsins.
- Nöfn tveggja umsagnaraðila
Laun samkvæmt kjarasamningi Kjalar og Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um hér
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Kjölur stéttarfélag áskilur sér sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Starfshlutfall getur verið á bilinu 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Anna Guðný Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri. Tölvupóstur: annagudny@kjolur.is og sími 5258385
