Nú er upplagt fyrir félagsfólk að nýta sér glæsilegar orlofseignir félagsins yfir haustið og vetrarmánuðina.
Sérstaklega er fallegt við Eiða á haustin, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Þar gefst einstakt tækifæri til að njóta kyrrðarinnar, náttúrunnar og litadýrðar árstíðarinnar. Hægt er að bóka orlofseignirnar við Eiða flesta mánuði ársins, en hafa þarf í huga þegar snjóa tekur að svæðið er ekki mokað. Leigutakar bera því ábyrgð á að fylgjast með aðstæðum og færð. Einnig er alltaf velkomið að hafa samband við skrifstofu félagsins til að fá upplýsingar um færð og aðgengi að húsunum.
Yfir vetrartímann eru bókanir samkvæmt reglunni „fyrstur kemur, fyrstur fær“. Þá er opnað fyrir bókanir á yfirstandandi mánuði og næstu þrjá mánuði þar á eftir.
Orlofseignir félagsins bjóða upp á góða aðstöðu til hvíldar og útivistar allt árið um kring þegar aðstæður leyfa. Við hvetjum félagsfólk til að skoða framboðið og njóta þeirra fjölbreyttu orlofskosta sem í boði eru.
Nánari upplýsingar og bókanir eru inná ,,mínum síðum" á kjolur.is



