Það var ánægjuleg stund í Grundarfirði í gær þegar Þóra Sonja Helgadóttir, verkefnastjóri Kjalar stéttarfélags, afhenti Grundarfjarðarbæ viðurkenningu fyrir þriðja sæti í viðhorfskönnuninni Sveitarfélag ársins 2026.
Grundarfjarðarbær var meðal fjögurra sveitarfélaga sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í könnuninni. Þar sem fulltrúi sveitarfélagsins átti þess ekki kost að vera viðstaddur verðlaunaafhendinguna á Hótel Selfossi þann 15. október síðastliðinn var viðurkenningin afhent sérstaklega í Grundarfirði í gær.
Kjölur stéttarfélag fagnar góðum árangri Grundarfjarðarbæjar og óskar sveitarfélaginu og starfsfólki þess innilega til hamingju með viðurkenninguna.
Sveitarfélag ársins 2026
Viðhorfskönnunin Sveitarfélag ársins var framkvæmd í fimmta sinn í ár og er samstarfsverkefni 11 bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB og Gallup. Kjölur stéttarfélag er eitt þeirra félaga sem standa að könnuninni.
Markmið könnunarinnar er að varpa ljósi á starfsumhverfi, starfsánægju og stjórnun á vinnustöðum sveitarfélaga. Niðurstöðurnar veita sveitarfélögum mikilvægar upplýsingar um það sem vel er gert og hvar tækifæri eru til umbóta. Jafnframt er markmiðið að hvetja sveitarfélög til að skapa gott og heilsusamlegt starfsumhverfi.
Helstu niðurstöður könnunarinnar
Niðurstöður ársins 2026 sýna að starfsfólk sveitarfélaga er almennt ánægt með starfsumhverfi sitt. Ánægja með launakjör, sveigjanleika og jafnrétti hefur aukist á þeim fimm árum sem könnunin hefur verið framkvæmd.
Í ár var sérstök áhersla lögð á andlega líðan og streitu í starfi. Þar kom fram að 45,4% svarenda finna frekar oft eða mjög oft fyrir streitu í starfi. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að huga áfram að vellíðan starfsfólks og góðum starfsaðstæðum.
Fjögur sveitarfélög hlutu viðurkenningu
Við hátíðlega athöfn á Hótel Selfossi þann 15. október voru fjögur sveitarfélög verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur í könnuninni:
- Hrunamannahreppur
- Grímsnes- og Grafningshreppur
- Grundarfjarðarbær
- Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Kjölur stéttarfélag óskar öllum sveitarfélögunum til hamingju með árangurinn.
Nánari upplýsingar um könnunina og niðurstöður hennar má finna á vef Mannauðssjóðsins Heklu.
