Fimmtudaginn 12. nóvember fór fram fræðsludagur trúnaðarmanna Kjalar. Að þessu sinni var fræðslan haldin í gegnum Teams og tóku 35 trúnaðarmenn þátt. Nýlega fóru fram trúnaðarmannakosningar hjá félaginu og var því sérstaklega ánægjulegt að fá bæði nýja og reynslumikla trúnaðarmenn saman til fræðslu og umræðna.
Dagskráin var fjölbreytt og meðal annars var fjallað um starfsemi félagsins, hlutverk trúnaðarmanna, vellíðan og öryggi í starfi, kjaramál og jákvæð samskipti á vinnustað. Einnig fengum við að heyra reynslusögu frá einum af okkar trúnaðarmönnum og ræddum saman um áherslur fyrir næstu kjarasamninga. Það var gaman að sjá hversu virkir trúnaðarmenn voru í umræðum, könnunum og hópavinnu þrátt fyrir að við værum ekki öll á sama stað. Að sjálfsögðu var einnig dregið í happadrætti með flottum vinningum. Þótt tæknin hafi aðeins strítt á köflum gekk dagurinn vel, stemningin var góð og almenn ánægja var með fræðsluna meðal þeirra sem svöruðu könnun að deginum loknum.
Næsta fræðsla trúnaðarmanna verður dagana 19.–20. apríl 2027 og verður þá hist í eigin persónu. Nánari upplýsingar um staðsetningu koma síðar.
Við þökkum trúnaðarmönnum kærlega fyrir skemmtilegan dag og góða þátttöku og fyrirlesurum fyrir fróðleg og góð erindi. Við hlökkum til að hitta ykkur í apríl!
