Kjölur stéttarfélag hefur ráðið Arnór Sigmarsson í starf sérfræðings í kjaramálum. Hann hefur störf í janúar 2027 og verður með starfsstöð á skrifstofu félagsins á Akureyri.
Hann er lögfræðingur að mennt og hefur sjö ára starfsreynslu hjá stéttarfélagi. Hann kemur því til félagsins með góða þekkingu og reynslu af kjaramálum og réttindum launafólks.
Starf hans mun meðal annars felast í ráðgjöf og þjónustu við félagsfólk, túlkun kjarasamninga og úrvinnslu kjaramála.
Við bjóðum Arnór hjartanlega velkominn í starfsmannahóp Kjalar og hlökkum til samstarfsins.