Félagsmenn á Akureyri geta sótt um hjá Bjargi íbúðafélagi

Dagsetning: 11. júní - 27. júlí
Tími: 00:00 - 00:00
Staðsetning:

Félagsmenn í aðildarfélögum BSRB og ASÍ hafa tekið vel við sér og fjölmargar umsóknir hafa borist Bjargi íbúðafélagi. Rétt er að minna sérstaklega þá sem búa á landsbyggðinni á möguleikann á að sækja um. Bjarg íbúðafélags, sem stofnað var af ASÍ og BSRB, hefur það að markmiði að byggja upp og leigja tekjulágum félögum þessara tveggja heildarsamtaka íbúðir. Félagið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Skráning á biðlista stendur nú yfir. Öllum umsóknum sem berast fyrir lok júlí verður safnað saman og verður dregið úr umsóknunum um sæti á biðlistanum í byrjun ágúst. Þeir sem sækja um eftir lok júlí fara svo á biðlistann í þeirri röð sem umsóknir berast.